|
|
 |
Helenurósin ´Hybrida´ er harðger og klifrar fagurlega |
 |
| 'Hybrida' við inngang. | Norræna rósahelgin var haldin í boði Norska rósafélagsins í Lillehammer og nágrenni í júlí 2008. Nokkrir félagar í íslenska rósaklúbbnum tóku þátt í viðburðum helgarinnar. Þar var m.a. farið í skoðunarferðir í marga einkagarða þar sem gat að líta margar fagrar rósir og skemmtilegan umbúnað um þær. Meðal þeirra voru nokkur yrki klifurrósa sem sögð voru hafa reynst vel við erfið skilyrði hátt til fjalla og á stöðum sem útsettir eru fyrir veðursveiflur að vori. Það voru aðallega yrki af Helenurósum (Rosa helenae) sem sumir vilja kalla hunangsrósir sem vöktu athygli Íslendinganna - sérstaklega yrkið ´Hybrida´sem sagt var hafa reynst vel við erfið skilyrði. Það er orðið mjög útbreitt norður um allan Guðbrandsdalinn og upp til fjalla þar. Yrkið ´Hybrida´ er mjög fljótvaxið og blómviljugt og skreytti víða umgjörðin við inngang húsa í Guðbrandsdalnum – það var einskonar einkennisrós á svæðinu. Þetta yrki er ekki algengt á markaði og hefur ekki verið til sölu hér á landi til þessa þótt önnur og lakari yrki af Helenurós hafi verið á boðstólnum. Fjölgun Helenurósa er hinsvegar sérstaklega auðveld - það þekkir höfundur þess pistils af eigin raun. Best þrífast þær hér á landi á eigin rót svo ekki ætti gróðrarstöðvum að verð skotaskuld úr því að reyna framleiðslu á þessu yrki, ´Hybrida´ fyrir innlenda rósaunnendur þegar næst í móðurplöntur en það er innan seilingar. Hér fylgja nokkrar myndir af þessari ágætu rós og gæti sómt sér vel við inngang að sumarbústöðum eða umhverfis sólpallinn á móti suðri.
|
|
Vilhjálmur Lúðvíksson |
Til baka
|
|
| yfirlit plantna
|
|