Til kartöfluræktenda

Heilbrigt útsæði frá viðurkenndum framleiðanda.
Um kartöfluhnúðorm

 

            Kartöfluhnúðormur er þráðormur sem fannst fyrst hér á landi árið 1953 í Reykjavík. Við rannsókn á árunum 1953-1960 kom í ljós að hann var útbreiddur í kartöflugörðum á Suðurlandi, einkum á suðvesturhorninu. Í úttekt sem gerð var haustið 1997 í garðlöndum höfuðborgarsvæðisins mátti víða finna hnúðorm. Á Norðurlandi fannst hann víða í heitum görðum. Enn hefur hann ekki fundist hjá kartöflubændum á mikilvægustu ræktarsvæðunum heldur eingöngu í heimilisræktun. Ljóst er að síðustu áratugir hafa verið hnúðormnum hagstæðir og hann náð að breiðast frekar út. Sums staðar eru garðar það sýktir orðnir að þeir eru óhæfir til kartöfluræktunar.

 

Einkenni

            Hnúðormurinn leggst nær eingöngu á ræturnar og dregur úr hæfni þeirra til að taka upp vatn og næringu. Á haustin má sjá örlitlar hvítar kúlur á rótunum, innan við 1 mm í þvermál. Þetta eru afturhlutar kvendýranna sem standa út úr rótinni, tútna út og fyllast af eggjum. Litur hnúðanna breytist síðan yfir í ljósbrúnan og síðar dökkbrúnan lit. Þegar fáir hnúðar eru á rótunum hefur það lítil áhrif á uppskeruna en eftir því sem þeim fjölgar dregur úr sprettunni og loks gulna grös á miðju sumri og uppskera bregst.

 

Stækkuð mynd af 4 hnúðum. Stærð hvers hnúðs er einungis um og innan við 1 mm í þvermál.
Varnir

            Hnúðormurinn breiðist einkum út með útsæði og jarðvinnslutækjum. Alltaf fylgir útsæðinu einhver jarðvegur og eins geta einhverjir hnúðar myndast á kartöflunum sjálfum. Af hálfu hins opinbera er reynt að sporna við frekari útbreiðslu með reglugerð landbúnaðarráðuneytisins nr. 455/2006 um kartöfluútsæði. Þar er reynt að tryggja að það útsæði sem fer á almennan markað beri ekki hnúðormasmit, en það kemur frá kartöfluframleiðendum með svokölluð útsæðisleyfi. Tekin eru jarðvegssýni hjá þessum ræktendum og leitað að smiti. Vara verður við því að setja niður kartöflur frá vinum og kunningjum og að setja niður matarkartöflur, innlendar sem innfluttar. Ræktendum sem hafa hnúðorm í görðum sínum er bannað að afhenda öðrum kartöflur til sáningar.

            Hægt er að halda hnúðormi niðri með því að leggja niður smitaða garða og loka þeim gjarnan með grasi.  Nota síðan einungis viðurkennt útsæði í nýja garða. Þar sem tök eru á er gott að flytja kartöflugarðinn til reglulega. Á ræktendum í almenningsgarðlöndum sveitarfélaganna hvílir sú ábyrgð að setja ekki niður hnúðormasmitað útsæði og afhenda ekki öðrum útsæði úr eigin garði.

            Víða er hægt að fá viðurkennt útsæði. Lykilatriði er að kartöflurnar séu merktar sem útsæði og að nafn ræktandans komi fram á umbúðum.

 

Frá Garðyrkjufélagi Íslands:

Þess má geta að allt útsæði sem selt hefur verið  á vegum Garðyrkjufélags Íslands er frá viðurkenndum framleiðendum. 

          

 

 

Sigurgeir Ólafsson, Matvælastofnun (2011)


Til baka

Senda á Facebook


yfirlit plantna