30. ágúst 2010

Kæfa úr reyktum fiski m. skessujurt

300 gr. soðin, beinhreinsuð, roðlaus, reykt ýsa
300gr. soðnar, flysjaðar, rauðar kartöflur
2. stk. mjög smátt skorinn laukur
4. mjög smátt skorin hvítlauksrif
2-4 matskeiðar skessujurt (eftir smekk) mjög smátt söxuð
100 gr. smjör
salt og fínmalaður svartur pipar eftir smekk.

Ýsa og kartöflur stappað saman fremur gróft. Smjör hitað varlega og lauknum og  hvítlauknum blandað í og látið malla í nokkrar mínútur. Að lokum er skessujurtin sett út í og smjörið tekið af hitanum. Öllum hráefnum blandað saman, kryddað og hrært rækilega. Kælt. Frábært álegg á allt brauð og sem partíréttur á litlar sneiðar af heimabökuðu rúgbrauði með smjöri.

 

Hugrún Jóhannesdóttir


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit uppskrifta