1 kg blandað grænmeti t.d. gulrætur, laukur, blómkál, gúrkur, grænir tómatar, paprika og rauður og/eða grænn pipar.
Grænmetið er þvegið og skorið í fallega bita. Grænmetið má vera blanda af eigin smekk, en um að gera að hafa það litskrúðugt.
Saltpækill
1 líter vatn
150 gr borðsalt
Hærið í þangað til saltið er orðið vel uppleyst. Leggið grænmetið í saltpækilinn í 12 klukkustundir.
Síðan er grænmetið tekið úr saltpæklinum og snöggsoðið í litlu vatni. Vatninu er helt af, því dreift á bakka og kælt.
Kryddlögur:
750 gr borðedik
300 gr sykur
6 lárviðarlauf
6 piparkorn og nokkur sinnepskorn ef vill.
Allt sett í pott, soðið þrisvar upp á leginum og kælt á milli.
Leggið grænmetið í „dauðhreinsaðar“ krukkur.
Hellið leginum yfir grænmetið í krukkunum og lokið þeim.
Tilbúið eftir 2 vikur.
|