|
17. maí 2013 |
Plöntuskiptidagur í Tryggvagarði á Selfossi 26. maí |
 |
| Frá plöntuskiptidegi á Selfossi á síðasta ári. | Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Árnesinga verður í Tryggvagarði við Austurveg á Selfossi, sunnudaginn 26. maí frá kl. 13:00 til 15:00. Á 128 ára afmælisdegi Garðyrkjufélags Íslands.
Mottóið er: Planta á móti plöntu, einnig verður hægt að kaupa plöntur á vægu verði.
Ef félagar eiga umfram fræ eða útsæði, þá er upplagt að skipta á því. Einnig verður skiptimarkaður / nytjamarkaður fyrir notaða potta, gróðurílát, garðverkfæri, garðaskraut, bækur og allt sem tillheyrir garðyrkju.
Allir velkomnir.
|
meira... |
| |
17. maí 2013 |
Plöntuskiptidagur í Grasagarðinum laugardaginn 1. júní |
 |
| Plöntuskiptidagur er einn vinsælasti dagur ársins, allir græða! | Hinn árlegi plöntuskiptidagur félagsins verður laugardaginn 1. júní frá kl. 10:00 til 12:00 í Grasagarði Reykjavíkur, á grasflötinni áður en komið er að Kaffi Flóru.
Félagar skipta á plöntu gegn plöntu og eru hvattir til að mæta með plönturnar í góðum ílátum frekar en í pokum og helst merktar. Fyrir þá sem eiga eitthvað annað til skiptana, þá verður einnig nytjamarkaður fyrir það sem má endurnýta, svo sem garðyrkjubækur, potta, verkfæri og annað sem tilheyrir ræktun. Annað hvort í skiptum eða fyrir litla upphæð.
|
meira... |
| |
16. maí 2013 |
Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar, 16. maí og fræðsla |
 |
| Kjöraðstæður fyrir smádýr eru í gróðurhúsum. | Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 16.maí kl. 19:30 á Löngumýri.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar.
Fræðsluerindi flytur Gunnþór Guðfinnsson garðyrkjufræðingur og fjallar m.a. um lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsum, um lífræna ræktun og moltugerð.
Fræðsluerindið er öllum opið. Frítt fyrir félagsmenn en 1000 kr fyrir aðra.
Nýir félagar velkomnir.
|
meira... |
| |
13. maí 2013 |
Fyrstu skrefin í matjurtarækt - Búðardal 15. maí |
 |
| Nýuppteknar næpur eru mjög ljúffengar og tiltölulega auðveldar í ræktun. | Margar spurningar vakna þegar ætlunin er að hefja matjurtarækt. Hvað þarf garðurinn að vera stór? Hvað eiga beðin að vera stór? Hvernig á að undirbúa moldina? Hverju á að sá og hversu miklu af hverri tegund? Á að forrækta? Hvenær á að planta út?
Brynhildur Bergþórsdóttir formaður matjurtaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands heldur fyrirlestur miðvikudaginn 15. maí kl. 19:30 í Leifsbúð í Búðardal Erindið nefnir hún “Fyrstu skrefin á matjurtarækt”
Fræðslukvöldið er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Matjurtaklúbb Garðyrkjufélags Íslands og Garðyrkjudeild Dalabyggðar.
Verð fyrir félagsmenn GÍ og GD kr. 500,- en fyrir aðra kr. 1.000,-
Allir velkomnir.
|
meira... |
| |
3. maí 2013 |
Birkifræ á tilboði |
 |
| Birkifræið sem í boði er, er allt tínt af hávöxnum og beinvöxnum trjám. | 10. maí 2013. Birkifræið er því miður uppselt. Félagar eiga nú kost á að panta stóran skammt (mörg þúsund fræ) af völdu birkifræi, sem hentar séstaklega vel fyrir sumarbústaðalóðir og önnur stærri landssvæði. Birkiskammtinum fylgja tveir lukkupokar, annar með blöndu af fjölæringafræjum en hinn með völdu trjáfræi.
Tilboðið stendur til 15. maí, en þá fer frænefnd í sumarfrí.
Pantanir óskast sendar á gardurinn@gardurinn.is
Munið að fylla út: nafn, heimilisfang, póstnúmer og félagsnúmer, sjá á félagsskírteini. Greiðsla kr. 1,000,- óskast lögð inn á bankareiking félagsins: 512-26-5701, kt. 570169-6539. Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en greiðsla hefur borist til félagsins merkt “fræ”.
|
meira... |
| |
26. apríl 2013 |
Garðyrkjuritið er komið út |
Ársrit Garðyrkjufélags Íslands, Garðyrkjuritið árg. 2013 er komið út. Ritið er innifalið í félagsgjaldi GÍ og var póstlagt til allra félagsmanna ásamt nýju félagsskírteini síðasta vetrardag. Þetta er 93. árgangur af ritinu, sem er 184 bls. að stærð, með 37 fróðlegum greinum um gróður og garða. Ritstjóri er Guðrún Agnarsdóttir. Þórunn Edda Bjarnadóttir sá um umbrotið. Prensmiðjan Oddi sá um prentunina. Ljósmynd tekin af Jóhanni Pálssyni af rósinni Guðfinnu prýðir forsíðuna.
Mynd af kápu Garðyrkjuritins er væntanleg og verður sett inn um leið og hún berst.
Félagsgjöld verða á gjalddaga þann 1. júní.
|
meira... |
| |
26. apríl 2013 |
Greinar og annað efni frá félagsmönnum í Garðinn |
 |
| Forsíða Garðsins frá sl. ári. | Hefð er komin fyrir því að Garðyrkjufélagið gefið út Garðinn í dagblaðsformi, í kringum afmæli félagsins þann 26. maí. Í ár mun Garðurinn koma út þann 30. maí eða þremur dögum eftir 128 ára afmæli félagsins. Félagar eru hvattir til að senda inn efni í blaðið. Efni blaðsins er frekar á léttu nótunum miðað við Garðyrkjuritið, greinar eru fleiri og flestar styttri, ýmiss fróðleikur um ræktun, gróður og garða, uppskriftir, góð ráð og annað léttmeti.
Nauðsynlegt er að vita um væntanlegt efni í blaðið sem allra fyrst. Nánari fyrirspurnir og efni í blaðið óskast sent á gardurinn@gardurinn.is sem allra fyrst og eigi síðar en 10. maí.
Hægt er að skoða Garðinn frá 2012 í pdf skjali með því að smella hér.
Ath. Smellið á titil fréttar til að sjá alla fréttina.
|
meira... |
| |
26. apríl 2013 |
Úrval af bókum til á skrifstofu félagsins |
Garðyrkjufélagið var að fá nýja sendingu af dönskum áhugaverðum garðyrkjubókum, má þar nefna Betonstöbning kennslubók um hvernig eigi að steypa eigin blómaker. Aðrar bækur fjalla m.a. um; gróðurhús, bóndarósir, jólarósir, breska- og danska garða, lífræna ræktun, sáðdagatal, dagbók garðyrkjumannsins og fleira.
Garðyrkjufélagið hefur til sölu yfir 50 bókatitla sem fjalla allar um gróður og garða. Leitast er við að hafa alltaf besta verðið til félagsmanna.
Félagar geta fengið bækur sendar heim með því að greiða burðargjald. Hægt er að senda pantanir á netfangið: gardurinn@gardurinn.is eða hringt á skrifstofuna í síma 552 7721. Skrifstofan er opin frá kl. 8-16 virka daga.
Smellið á hnappinn Verslun hérna vinstra megin á síðunni til að skoða úrvalið.
|
meira... |
| |
25. apríl 2013 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Þuríður Backman formaður Garðyrkjufélagsins |
24. apríl 2013 |
Opið hús hjá Garðyrkjuskólanum á sumardaginn fyrsta |
18. apríl 2013 |
Framboð til stjórnar Garðyrkjufélags Íslands |
10. apríl 2013 |
Aðalfundur Garðyrkjufélags Íslands - Dagskrá |
10. apríl 2013 |
Pappírs pottarinn fæst á skrifstofu Gí |
9. apríl 2013 |
Yndisgróður í sumarbústaðalandinu |
25. mars 2013 |
Aðalfundur Garðyrkjufélags Íslands þann 22. apríl |
25. mars 2013 |
Nýr frælisti er kominn á heimasíðuna |
25. mars 2013 |
Ný bókasending á skrifstofu félagsins |
20. mars 2013 |
Lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsinu - fyrirlestur 21. mars |
14. mars 2013 |
Fyrirlestur um breytileika- þriðjudaginn 19. mars |
21. febrúar 2013 |
Húsfylli á fræðslukvöldi um ræktun ávaxtatrjáa á Selfossi |
20. febrúar 2013 |
Fyrirlestur um fræ, meðhöndlun og fjölgun þeirra |
11. febrúar 2013 |
Yngsti vinningshafinn á opnu húsi |
5. febrúar 2013 |
Vinningshafar á opnu húsi í Ráðhúsi Reykjavíkur |
4. febrúar 2013 |
Nýr frælisti væntanlegur um miðjan febrúar |
eldri fréttir
|