31. maí 2012

Plöntuskiptidagur þann 2. júní

Ánægðir félagar á plöntuskiptidegi og greinilegt að gleði skín úr hverju andliti.
Hinn árlegi plöntuskiptidagur
félagsins verður laugardaginn 2. júní frá kl. 10:00 til 12:00 í Grasagarði Reykjavíkur, á grasflötinni áður en komið er að Kaffi Flóru. 

 

Það sjónarmið kom skýrt fram  á aðalfundinum, að félagið taki Eyjafjarðardeildina sér til fyrirmyndar í framtíðinni, þannig að plöntuskiptin verði öllum að kosnaðarlausu - sem er svo sannarlega í anda félagsins.

 

Félagar skipta á plöntu gegn plöntu og eru hvattir til að mæta með plönturnar í góðum ílátum frekar en í pokum og vel merktar. Hægt er að merkja ílátin t.d. með málningarlímandi sem má skrifa plöntunafnið á, einnig er hægt skrifa með tússi beint á ílátin. Fyrir þá sem eiga eitthvað annað til skiptana, t.d. fyrir nýja og yngri félaga, svo sem gömul Garðyrkjurit, gamlar garðyrkjubækur, gömul verkfæri og annað sem þeir þurfa að losa sig við, þá er sjálfsagt að nota tækifæri og losa sig við það, annað hvort í skiptum eða fyrir litla upphæð.

 

Smellið á titil fréttar að lesa alla fréttina.

 

 

 

Frá plöntuskiptidegi félagsins á síðasta ári í Grasagarði Reykjavíkur.
Upplagt er að skrifa óskalista fyrir plöntuskipti inn á umræður / spjall hér á heimasíðunni eða jafnvel að taka fram hvað þið ætlið að koma með.  

 

Allar plöntur eru vel þegnar, skiptir ekki máli hvort um sé að ræða; tré, runna, matjurtir, fjölæringa, sumarblóm, stofublóm, sáðplöntur eða garðskálaplöntur.  Þeir sem ekkert eiga til skiptanna, ættu eftir sem áður að eiga kost á því að greiða mjög vægt gjald fyrir plöntur, t.d. 100-200 krónur fyrir plöntuna. 

 

Ath.:  Eingöngu fyrir GÍ félaga.  -  Munið að hafa nýju félagsskírteinin meðferðis sem voru send út með Garðyrkjuritinu í byrjun maí. 

 

 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta