Garðyrkjufélag Íslands - Horticultural Society of Iceland,
Plöntuskiptidagur í Tryggvagarði á Selfossi 26. maí
Frá plöntuskiptidegi á Selfossi á síðasta ári.Plöntuskiptidagur Garðyrkjufélags Árnesinga verður í Tryggvagarði við Austurveg á Selfossi, sunnudaginn 26. maí frá kl. 13:00 til 15:00.  Á 128 ára afmælisdegi Garðyrkjufélags Íslands.
Mottóið er: Planta á móti plöntu, einnig verður hægt að kaupa plöntur á vægu verði.
Ef félagar eiga umfram fræ eða útsæði, þá er upplagt að skipta á því. Einnig verður skiptimarkaður / nytjamarkaður fyrir notaða potta, gróðurílát, garðverkfæri, garðaskraut, bækur og allt sem tillheyrir garðyrkju.
Allir velkomnir.
Plöntuskiptidagur í Grasagarðinum laugardaginn 1. júní
Plöntuskiptidagur er einn vinsælasti dagur ársins, allir græða!Hinn árlegi plöntuskiptidagur félagsins verður laugardaginn 1. júní frá kl. 10:00 til 12:00 í Grasagarði Reykjavíkur, á grasflötinni áður en komið er að Kaffi Flóru.
Félagar skipta á plöntu gegn plöntu og eru hvattir til að mæta með plönturnar í góðum ílátum frekar en í pokum og helst merktar.  Fyrir þá sem eiga eitthvað annað til skiptana, þá verður einnig nytjamarkaður fyrir það sem má endurnýta, svo sem garðyrkjubækur, potta, verkfæri og annað sem tilheyrir ræktun.  Annað hvort í skiptum eða fyrir litla upphæð.
Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar, 16. maí og fræðsla
Kjöraðstæður fyrir smádýr eru í gróðurhúsum. Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 16.maí kl. 19:30 á Löngumýri.
Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar.
Fræðsluerindi flytur Gunnþór Guðfinnsson garðyrkjufræðingur og fjallar m.a. um lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsum, um lífræna ræktun og moltugerð.
Fræðsluerindið er öllum opið. Frítt fyrir félagsmenn en 1000 kr fyrir aðra.
Nýir félagar velkomnir.
Fyrstu skrefin í matjurtarækt - Búðardal 15. maí
Nýuppteknar næpur eru mjög ljúffengar og tiltölulega auðveldar í ræktun.Margar spurningar vakna þegar ætlunin er að hefja matjurtarækt.  Hvað þarf garðurinn að vera stór? Hvað eiga beðin að vera stór? Hvernig á að undirbúa moldina? Hverju á að sá og hversu miklu af hverri tegund? Á að forrækta? Hvenær á að planta út?
Brynhildur Bergþórsdóttir formaður matjurtaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands heldur fyrirlestur miðvikudaginn 15. maí kl. 19:30 í  Leifsbúð í Búðardal Erindið nefnir hún “Fyrstu skrefin á matjurtarækt”
Fræðslukvöldið er samstarfsverkefni Dalabyggðar, Matjurtaklúbb Garðyrkjufélags Íslands og Garðyrkjudeild Dalabyggðar.
Verð fyrir félagsmenn GÍ og GD kr. 500,- en fyrir aðra kr. 1.000,-
Allir velkomnir.
Birkifræ á tilboði
Birkifræið sem í boði er, er allt tínt af hávöxnum og beinvöxnum trjám.10. maí 2013.  Birkifræið er því miður uppselt.  Félagar eiga nú kost á að panta stóran skammt (mörg þúsund fræ) af völdu birkifræi, sem hentar séstaklega vel fyrir sumarbústaðalóðir og önnur stærri landssvæði.  Birkiskammtinum fylgja tveir lukkupokar, annar með blöndu af fjölæringafræjum en hinn með völdu trjáfræi.
Tilboðið stendur til 15. maí, en þá fer frænefnd í sumarfrí.
Pantanir óskast sendar á gardurinn@gardurinn.is
Munið að fylla út: nafn, heimilisfang, póstnúmer og félagsnúmer, sjá á félagsskírteini. Greiðsla kr. 1,000,-   óskast lögð inn á bankareiking félagsins:  512-26-5701, kt. 570169-6539.  Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en greiðsla hefur borist til félagsins merkt “fræ”.
Garðyrkjuritið er komið út
Mynd af kápu Garðyrkjuritins er væntanleg og verður sett inn um leið og hún berst.
Félagsgjöld verða á gjalddaga þann 1. júní.
Greinar og annað efni frá félagsmönnum í Garðinn
Forsíða Garðsins frá sl. ári.Hefð er komin fyrir því að Garðyrkjufélagið gefið út Garðinn  í dagblaðsformi,  í kringum afmæli félagsins þann 26. maí.  Í ár mun Garðurinn koma út þann 30. maí eða þremur dögum eftir 128 ára afmæli félagsins. Félagar eru hvattir til að senda inn efni í blaðið.  Efni blaðsins er frekar á léttu nótunum miðað við Garðyrkjuritið, greinar eru fleiri og flestar styttri, ýmiss fróðleikur um ræktun, gróður og garða, uppskriftir, góð ráð og annað léttmeti.
Nauðsynlegt er að vita um væntanlegt efni í blaðið sem allra fyrst.  Nánari fyrirspurnir og efni í blaðið óskast sent á gardurinn@gardurinn.is sem allra fyrst og eigi síðar en 10. maí.
Hægt er að skoða Garðinn frá 2012 í pdf skjali með því að smella hér.
Ath. Smellið á titil fréttar til að sjá alla fréttina.
Úrval af bókum til á skrifstofu félagsins
Garðyrkjufélagið hefur til sölu yfir 50 bókatitla sem fjalla allar um gróður og garða.  Leitast er við að hafa alltaf besta verðið til félagsmanna.
Félagar geta fengið bækur sendar heim með því að greiða burðargjald. Hægt er að senda pantanir á netfangið: gardurinn@gardurinn.is eða hringt á skrifstofuna í síma 552 7721. Skrifstofan er opin frá kl. 8-16 virka daga.
Smellið á hnappinn Verslun hérna vinstra megin á síðunni til að skoða úrvalið.
Þuríður Backman formaður Garðyrkjufélagsins
Þuríður Backman nýkjörin formaður GÍFélagar fjölmenntu á aðalfund Garðyrkjufélags Íslands sem haldinn var í Safnaðarheimili Neskirkju í gærkvöldi. Þuríður Backman var kosin formaður með lófaklappi.  Leynileg kosning var um aðra stjórnarmeðlimi, nýja stjórn GÍ skipa nú auk Þuríðar, þau Halldór Reynisson og  Margrét Frímannsdóttir  sem koma ný inn, en Guðríður Helgadótir og Hugrún Jóhannesdóttir sitja áfram.  Í varastjórn voru kosin Carl J. Gränz, Lilja Sigrún Jónsdóttir og Þyrí Emma Þorsteinsdóttir.
Um 70 manns voru á fundinum, fundargerð aðalfundar má lesa með því að smella hér.
Fráfarandi formanni og þeim sem gengu úr stjórn voru þökkuð vel unnin og óeigingjörn störf í þágu félagsins.
Opið hús hjá Garðyrkjuskólanum á sumardaginn fyrsta
Hnúðkálið góða verður m.a. til sölu á Reyjum.Opið hús verður  í Garðyrkjuskólanum á Reykjum, fimmtudaginn 25. apríl kl. 10:00 -18:00.  Garðyrkjufélag Íslands mun verða með kynningarbás á svæðinu, kynna félagið og bjóða nýja félaga velkomna.  Jafnfram ram munum við kynna og selja pappírspottarana vinsælu. Á markaðstorgi verður ýmislegt til sölu, svo sem grænmeti, blóm  hnúðkáll og fleira. Að venju eru veitingar seldar á staðnum, í boði að skoða Bananahúsið og pottaplöntusafnið.  Garðyrkjuverðlaunin verða verða veitt, kynning námsbrauta, andlitsmálun og ratleikur.  Eitthvað fyrir alla.