Lög fyrir Garðyrkjufélags Íslands

Samþykkt á aðalfundi félagsins 15. apríl, 2010

 

1. gr.  Skilgreining á félaginu

Félagið heitir Garðyrkjufélag Íslands og er félag áhugafólks um garðyrkju. Það er opið öllum sem áhuga hafa á gróðri, ræktun og fegrun umhverfis og vilja deila áhuga sínum með öðrum sama sinnis.  Félagssvæði þess er allt landið. Heimili og varnarþing félagsins er í Reykjavík.

 

2. gr. Hlutverk  og markmið félagsins

Hlutverk Garðyrkjufélags Íslands er að afla, varðveita og miðla þekkingu og auka áhuga á garðrækt og ræktunarmenningu um land allt.  Markmið Garðyrkjufélagsins eru;

·         að vera vettvangur félagsmanna til skoðanaskipta, skapandi samveru og miðlunar þekkingar meðal félagsmanna og bæta aðstöðu þeirra til að stunda áhugamál sitt.

·         að miðla til almennings þekkingu og reynslu í ræktun og fegrun umhverfis og stuðla með því að uppbyggingu fjölbreytts og fagurs gróðurríkis í byggðum landsins og nánasta umhverfi þeirra.

·         að sameina krafta aðila á sviði garðyrkju og ræktunar til fegrunar á nærumhverfi byggðar, aukinnar fræðslu og eflingar rannsókna á sviði ræktunar.

·         að leiða saman kynslóðir og skapa skilyrði fyrir auknum áhuga á garðyrkju fólks á öllum aldri.

·         að félagið verði sýnilegt og leiðandi afl í fræðslu um garðrækt, ræktunarmenningu og umhverfismál í þágu allra landsmanna..

Stjórn félagsins gerir starfsáætlanir um framkvæmd þessara markmiða á hverjum tíma og kynnir félagsmönnum.  

 

3. gr. Gildi félagsins

Gildi félagsins eru:

Sköpunargleði – sem er ánægjan af mótun fjölbreyttra garðlanda og yndi af því að fylgjast með gróðri dafna í nánasta umhverfi byggðar.

Umhyggja fyrir gróðrinum, umhverfinu og félagslegri samveru.

Þrautseigja við að breiða út þekkingu á ræktun og stuðla að heilbrigðum  lífsháttum. Seigla félagsins frá upphafi sýnir að félagsmenn gefast ekki upp þótt á móti blási í eigin ræktunarstarfi.

Forvitni um nýjar tegundir, kvæmi og yrki plantna og þróun aðferða við ræktun þeirra við íslenskar aðstæður er stöðugur hvati til þekkingarleitar og ánægju í frístundum og félagsstarfi.

 

4. gr.  Deildir nefndir og klúbbar

Félagsmenn geta stofnað með sér deildir innan félagsins, innan héraða eða á ákveðnum svæðum. Lög eða starfsreglur deildanna þurfa að endurspegla hlutverk Garðyrkjufélagsins og hljóta samþykki stjórnar. Deildirnar geta sjálfar annast fjármál sín eða óskað eftir aðstoð félagsins. Starfsskýrslur deilda skulu berast stjórn GÍ fyrir 1. febrúar ár hvert.

Innan GÍ er hægt að stofna klúbba eða verkefnahópa um einstök áhugamál innan garðyrkjunnar. Félagar sem hafa áhuga á að efna til slíks starfs skulu leggja fyrir stjórn  upplýsingar um  viðfangsefnið og  tillögu um skipulagsform. Stofnun og starfsreglur klúbba þurfa samþykki stjórnar. Klúbbar geta innheimt sérstök þáttökugjöld og annast sjálfir fjármál sín eða óskað eftir aðstoð félagsins í því efni. Starfsreglur skulu m.a. kveða á um fjölda stjórnarmanna. Stjórn klúbba er kosin á aðalfundi þeirra til tveggja ára í senn. Formaður er kosinn sérstaklega en stjórnin skiptir með sér verkum að öðru leyti.  Allir félagsmenn GÍ eiga jafnan aðgang að skráningu og þátttöku í starfi klúbbanna í um aðild að GÍ. Stjórn GÍ getur boðið félögum/klúbbum sem starfa að viðfangsefnum sem samrýmast við hlutverki og markmiðum GÍ aðild að félaginu og þjónustu þess - enda verði allir meðlimir félagar í GÍ.

 

5. gr.  Félagsmenn

Félagsmenn geta allir orðið sem vilja vinna að markmiðum félagsins í samræmi við hlutverk þess, þ.m.t. einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir. Árgjald er ákveðið af aðalfundi og er aðalfundardagur ári síðar eindagi þess.  Greiðsla þess er skilyrði fyrir aðild. Dragist greiðsla árgjalds lengur en til loka starfsárs, skulu félagar felldir úr félagaskrá og missa félagsréttindi, þar til skuldin er greidd að fullu nema stjórn ákveði annað. Stjórn GÍ getur valið heiðursfélaga GÍ, skulu þeir halda félagsréttindum sinum áfram en vera undanþegnir greiðslu árgjalds.

 

6. gr.  Aðalfundur

Aðalfund skal halda ár hvert fyrir apríllok. Fundurinn er lögmætur sé hann tilkynntur með minnst eins mánaðar fyrirvara. Fundarboð, dagskrá og tillögur um breytingar á lögum skulu verða aðgengilegar í fréttabréfi og á heimasíðu GÍ eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund. Leggja má tillögur um ályktanir fyrir aðalfund á fundinum sjálfum. Á fundum félagsins ræður afl atkvæða, nema lagabreytingar þurfa 2/3 hluta greiddra atkvæða.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Fundarsetning
  2. Kosning fundarstjóra og ritara
  3. Skýrsla stjórnar og starfsnefnda GÍ
  4. Reikningar lagðir fram og skýrðir
  5. Umræður og atkvæðagreiðsla um skýrslu stjórnar og reikninga
  6. Ákvörðun félagsgjalds          
  7. Lagðar fram tillögur um lagabreytingar
  8. Lagðar fram tillögur til ályktunar aðalfundar
  9. Umræður og atkvæðagreiðsla um lagabreytingar og ályktunartillögur
  10. Kosning stjórnar, skoðunarmanna reikninga og starfsnefnda
  11. Önnur mál

Starfsskýrslu stjórnar skal birta ár hvert í Garðyrkjuritinu ásamt ágripi af starfskýrslum deilda, klúbba og starfsnefnda GÍ.

 

7. gr.  Skipun stjórnar og stjórnarkjör

Aðalfundur kýs stjórn félagsins.  Stjórnin er skipuð 5 einstaklingum: Formanni, varaformanni, ritara, gjaldkera og meðstjórnanda. Kjörtímabil stjórnar skal vera tvö ár; þannig að annað árið skulu kjörnir varaformaður og gjaldkeri en hitt árið formaður, ritari og meðstjórnandi. Þriggja manna varastjórn er kosin til eins árs í senn ásamt tveimur skoðunarmönnum ársreikninga og tveimur til vara.
Gefi stjórnarmaður sem sitja skyldi áfram eftir lögum þessum, kost á sér í annað starf innan stjórnar, er heimilt að kjósa hann til þess og þá annan mann í hans stað fyrir þann tíma sem eftir er af kjörtímabilinu. Eins er það, ef aðalmaður í stjórn forfallast skal kjósa aðalmann í hans stað á næsta aðalfundi, þann tíma sem eftir er af kjörtíma þess er hætti störfum

 

8. gr.  Hlutverk stjórnar

Stjórnin fer með öll mál félagsins milli aðalfunda, eftir þeim reglum og innan þeirra marka sem lög og aðalfundur setja.  Hún veitir móttöku öllu því fé er félaginu áskotnast og ávaxtar sjóði þess. Stjórnin ræður starfsmann til félagsins þegar fjárhagur leyfir og veitir honum skýrt starfsumboð. Kaup og sala á fasteignum félagsins er bundin samþykkt aðalfundar.

 

9. gr.  Slit á félaginu

Komi fram tillaga þess efnis að slíta félaginu þarf að leggja hana fram á aðalfundi og skal þess getið í fundarboði.  Geta 2/3 hluti fundarmanna á aðalfundi  samþykkt að vísa tillögunni til allsherjaratkvæðagreiðslu meðal félagsmanna. Jafnframt verður aðalfundur að taka ákvörðun um hvernig eigum félagsins skuli ráðstafað sem yrði borin upp í allsherjaratkvæðagreiðslu um slit þess. Félaginu verður ekki slitið nema með samþykkt 2/3 hluta greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu

­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­­____________________________________