Frakkastígur 9
 

 

 

 

Garðyrkjufélag Íslands

Frakkastíg 9,

101 Reykjavík

Símar: 552-7721, 896-9922, 853-9923

gardurinn@gardurinn.is

Kt. 570169-6539

 

                                

 

                                                              

 

  

 

Skrifstofa félagsins er opin alla virka daga frá kl 08:00 - 16:00  

Valborg Einarsdóttir garðyrkjufræðingur er framkvæmdastjóri Garðyrkyrkjufélags Íslands og Kristinn H. Þorsteinsson er fræðslu- og verkefnastjóri félagsins í hálfu starfi. Alltaf er öruggara að hringja á undan sér eða senda tölvupóst áður en kíkt er við á skrifstofu félgsins, þar sem starfsmenn geta þurft að bregða sér frá.

Þuríður Backman hjúkrunarfræðingur og fv. alþingismaður er formaður Garðyrkjufélagsins frá árinu 2013.

 

Þuríður Backman

formaður

Valborg Einarsdóttir

framkvæmdastjóri

Kristinn H. Þorsteinsson

fræðslu- og verkefnastjóri

 

   

Helstu þættir í starfi félagsins eru:

 

  • Öflug heimasíða sem miðlar upplýsingum.

 

Útgáfumál

  • Garðyrkjuritið, árbók félagsins er innfalið í félagsgjaldinu og kemur út ár hvert, að mestu óslitið frá árinu 1895. Í því er mikill fróðleikur og áhugaverðar greinar um allt er viðkemur gróðri og görðum. 
  • Garðurinn kemur út sem fylgiblað í dagblaðsformi í lok maí ár hvert eða í kringum afmæli félagsins. Útgáfa fréttabréfsins Garðsins hefur að mestu legið niðri frá bankahruninu vegna mikils kostnaðar, en allar fréttir af félaginu er að finna á  heimasíðu félagsins. Af annarri útgáfustarfsemi í gegnum tíðina má nefna bækur eins og Hvannir, Rósir, Matjurtabókina, Skrúðgarðabókina, Sveppakverið og Garðinn - hugmyndir að skipulagi og efnisvali.

 

Fræðslufundir og ferðir

  • Fræðslufundir eru snar þáttur í starfsemi Garðyrkjufélagsins. Þeir eru haldnir mánaðarlega í Reykjavík yfir vetrartímann í Reykjavík.  Félagið hafði umsjón með garðyrkjuþætti  og Blómi vikunnar í  Morgunblaðinu til margra ára, en nú er Blóm vikunnar komið inn á heimasíðuna.   og annast útvarpserindi.
  • Félagið hefur tekið þátt í garðyrkjusýningum hér á landi, síðast Blóm í Bæ í Hveragerði og heimsótt aðrar erlendis. 
  • Garðaskoðun og garðagöngur er árlegur viðburður hjá Garðyrkjufélaginu, en þá standa nokkrir valdir garðar opnir félagsmönnum til skoðunar. Einnig er oft efnt til sérstakra skoðunarferða.
  • Skipulagðar fræðslu- og skoðunarferðir innanlands og utan eru farnar annað til þriðja hvert ár.

 

Fræbanki

  • Árlega er gefinn út frælisti fyrir félaga með um 1.000 tegundum og yrkjum sem hægt er að panta af. Fjölmargir félagar Garðyrkjufélagsins safna fræjum í eigin garði, hreinsa og senda félaginu sem annast dreifingu á fræinu.

 

Klúbbar

  • Rósaklúbbur hefur það að markmiði að auka ræktun og þekkingu á rósum.
  • Sumarhúsaklúbbur hefur það að markmiði að efla þekkingu og auka fjölbreytta ræktun í sumarhúsalöndum.
  • Matjurtaklúbbur. Markmið hans er að stuðla að aukinni þekkingu á ræktun og notkun krydd- og matjurta hér á landi.
  • Blómaskreytingaklúbbur hefur það að markmiði að auka þekkingu og áhuga á blómaskreytingum.

 

Deildir

  • Fréttir af virkum deildum er að finna á heimasíðunni.