![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Matjurtaklúbburinn Hvannirstofnaður 23. sept. 2003
Allir félagar Garðyrkjufélags Íslands geta gerst félagar í öllum klúbbum félagsins, nægjanlegt er fyrir þá að senda tölvupóst á gardurinn@gardurinn.is og óska eftir skráningu í klúbba.
Hægt er að gerast félagi í Garðyrkjufélaginu undir krækju vinstra megin á síðunni merkt Skráning í félagið, nýjir félagar eru ævinlega velkomnir í félagið sem er öllum opið.
Í maí 2011 voru 623 félagar skráðir í klúbbinn.
Stjórn klúbbsins skipa: Jóhanna B. Magnúsdóttir, formaður Jón Guðmundsson, meðstjórnandi
Lög klúbbsins:1. gr. Nafn klúbbsins er Hvannir – Matjurtaklúbbur GÍ 2. gr. Markmið klúbbsins er að auka ræktun og þekkingu á mat- og kryddjurtum. Til að ná því markmiði ætla klúbbfélagar að:
3. gr. Innganga í klúbbinn er heimil félögum í Garðyrkjufélagi Íslands sem heldur skrá um félagsmenn. 4. gr. Aðalfund skal halda í september ár hvert. Boða skal fundinn skriflega með minnst 14 daga fyrirvara. 5. gr. Stjórnina skipa formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi. Skulu þeir kosnir á aðalfundi til tveggja ára í senn, samkvæmt uppástungu frá a.m.k. tveim fundarmönnum. Formaður er kosinn í fyrsta sinn til tveggja ára en varaformaður og meðstjórnandi sitja aðeins eitt ár fyrsta árið og síðan eru þeir kosnir til tveggja ára eftir það. Hætti formaður störfum á kjörtímabilinu tekur varaformaður við en kjósa skal formann á næsta aðalfundi. Hætti aðrir stjórnarmenn jafnframt störfum tekur formaður Garðyrkjufélagsins við stjórn klúbbsins og skal hann boða til aðalfundar eigi síðar en mánuði frá því stjórn hætti störfum. Samþykkt á stofnfundi klúbbsins 23. september 2003. Allar nánari upplýsingar eru góðfúslega veittar á skrifstofu Garðyrkjufélagsins í síma 552-7721 eða í gegn um netfangið gardurinn@gardurinn.is |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||