FRÓÐLEIKUR - RÁÐ - ÁBENDINGAR
Lífræn viðbrögð gegn maðki á trjám.
Maxi Crop er lífrænn áburður, unninn úr sjávargróðri. Maxi Crop er góð næring og talinn geta fyrirbyggt að maðkur leggist á tré. Meðferð: Úða trén að vori um það leyti sem maðkurinn fer á stjá. Eftir 2 - 3 ár vill maðkurinn ekki trén. Blöndun: 100 ml. Maxi Crop í 5 lítra af vatni.
Ráð frá garðyrkjufræðingi í Garðheimum.
Áburðarlögur.
Einnig kom fínt ráð frá Guðlaugu og Tómasi en þau eru að rækta í Hraunborgum, Grímsnesi. Þeirra ráð er að setja skít í grisju og láta gerjast í vatni í tunnu í u.m.þ.b. viku og er þá kominn kjarnmikill áburður á gróðurinn.
Ráð frá félaga.
|