|
8. apríl 2013 |
Yndisgróður í sumarbústaðalandinu |
Sumarbústaðaklúbburinn Hvannir efna til fræðslufundar um Yndisgróður í sumarbústaðalandinu þann þriðjudaginn 9. apríl í Safnaðarheimili Neskirkju.
Fyrirlesari er Samson B. Harðarson, landslagsarkitekt og lektor við Landbúnaðarháskóla Íslands
Samson fjallar um Yndisgróðursverkefnið og frá ýmsum harðgerðum trjá- og runnategundum úr tilraunareitum verkefnisins, sem gagnast geta við að skreyta og auka fjölbreytileika í sumarhúsalandinu. Heimasíða verkefnisins verður einnig kynnt og notkunarmöguleikar sýndir.
Fræðslufundurinn byrjar kl. 19:00 til kl 21:00.
Félagar hvattir til að taka með sér gesti.
|
meira... |
| |
5. apríl 2013 |
Fyrirlestur um fjölbreytileika gróðurs í sumarbústaðalandinu |
 |
| Félagar dáðst að snælenju. |
Vegna veikinda fellur þessi fyrirlestur niður.
Þess í stað mun Samson B. Harðarson Landslagsarkitekt flytja fyrirlestur um Yndisgróður í sumarbústaðalandinu.
Sjá frétt að ofan.
Aðstæður til ræktunar í sumarbústaðalöndum hafa batnað með hlýnandi loftslagi og áhugi fyrir fjölbreyttum gróðri, trjám runnum og fjölæringum fer vaxandi. Allt um þetta á fræðslukvöldi Sumarhúsaklúbbsins þann 9. apríl í Safnaðarheimili Neskirkju.
Kristinn H. Þorsteinsson fræðslufulltrúi Garðyrkjufélagsins segir frá áhugaverðum tegundum sem henta vel í sumarhúsalandið, harðgerði þeirra og sérkenni með mismunandi notkun í huga..
Fræðslufundurinn byrjar kl. 19:00 til kl 21:00.
Félagar hvattir til að taka með sér gesti.
|
meira... |
| |
2. apríl 2013 |
Fréttir af aðalfundi sumarhúsaklúbbsins |
Aðalfundur sumarhúsaklúbbsins var haldinn í Spírunni í Garðheimum þann 26. febrúar sl. Á dagskránni voru venjuleg aðalfundarstörf. Flutt var skýrsla stjórnar um starfið síðastliðið ár. Starfið var með hefðbundnu sniði. Aðalfundur var haldinn í febrúar, sumarferðin var farin í ágúst og fræsöfnunarferðin í byrjun október.
Edda Magnúsdóttir gaf kost á sér til áframhaldandi setu í stjórn og Gylfi Konráðsson kom nýr inn. Agnes Hansen er formaður. Fundarmenn samþykktu tillögu stjórnar um að starfið næsta ár yrði með svipuðu sniði og í fyrra.
Eftir aðalfundarstörfin flutti Kristinn H. Þorsteinsson afar fróðlegt og skemmtilegt erindi um fjölbreytileika gróðurs í sumarbústaðarlandinu. Umræðuefnið var að sjálfsögðu ekki tæmt og stefnt er að framhaldi nú í apríl.
|
meira... |
| |
22. febrúar 2013 |
Aðal- og fræðslufundur Sumarhúsaklúbbsins 26. feb. |
Aðalfundur Sumarhúsaklúbbsin verður í Spírunni í Garðheimum þriðjudaginn 26. febrúar frá kl. 19:00 til 21:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
kaffihlé
Fyrirlestur. Fjölgun og fjölbreytileiki gróðurs í sumarbústaðalandinu. Fyrirlesari: Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur.
Félagar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. Aðgangur ókeypis.
Hér með er auglýst eftir klúbbfélögum í stjórn Sumarhúsaklúbbsins. Áhugasamir hafi samband við Agnesi formann klúbbsins á netfangið agnes@menntaborg.is sem veitir allar frekari upplýsingar.
Sagt er að "nýir vendir sópi best" !
|
meira... |
| |
12. október 2012 |
Stemning hjá félögum i fræsöfnunarferð |
 |
| Það eykur á ræktunargleðina að safna fræinu, sá því og horfa á plöntuna dafna og stækka. | Það var stemning í hlýrri rigningunni í fræsöfnunarferð Sumarhúsaklúbbsins á Mógilsá þann 8. októtber sl., þegar félagar í klúbbnum söfnuðu fræjum undir leiðsögn Dr. Aðalsteins Sigurgeirssonar. Að þessu sinni voru félagar óvenju seint á ferðinni, þar sem tíðarfar hefur verið óhagstætt fræsöfnunarfólki þetta árið. Þeir félagar sem ekki sáu sér fært að mæta komast vonandi næsta ár!
|
meira... |
| |
5. október 2012 |
Fræsöfnunarferð í Esjuhlíðar! |
 |
| Frá fræsöfnunarferð sumarhúsaklúbbsins sl. haust. | Fræsöfnunarferð Sumarhúsaklúbbsins verður farin á mánudag, þann 8. október. Leiðsögumaður verður Dr. Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Rannsóknarstöðvar skógrækar á Mógilsá. Safnast verður saman við húsnæði skógræktarinnar að Mógilsá um kl. 17, og gengið þaðan í skóginn undir leiðsögn dr. Aðalsteins.
Safnað verður fræi af ýmsum tegundum og í leiðinni má fá góð ráð varðandi sáningar og eins má glöggva sig á því hvernig fræ hinna ýmsu tegunda lítur út og hvenær það er þroskað.
Farin var sambærileg ferð í fyrrahaust og nú eiga væntanlega margir lítil reynitré, birki, elri, furur og jafnvel rósir sem sáð var fyrir þá. Eins og þeir vita sem komið hafa í skóginn í Esjuhlíðum er þar að finna fjölmargar trjátegundir og nú gefst tækifæri til að fá fræ af tegundum sem þrífast vel hér og ná að mynda fræ.
|
meira... |
| |
4. september 2012 |
Fyrirhuguð fræsöfnunarferð - skoðanakönnun |
 |
| Fræi safnað í fræsöfnunarferð. | Sumarhúsaklúbburinn stóð fyrir fræsöfnun í Esjuhlíðum í fyrrahaust. Safnað var fræi af ýmsum trjátegundum og nú langar okkur að vita hvort áhugi sé fyrir svipaðri ferð í ár.
Hér fylgir örstutt könnun á viðhorfi félagsmanna varðandi fræsöfnunarferð í haust. Vinsamlegast smellið hér til að svara könnuninni.
|
meira... |
| |
4. september 2012 |
Vel heppnuð sumarferð |
 |
| Garðyrkjumaður með vökvunarkönnu vakti mikla athygli. | Sumarhúsaklúbburinn átti góða ferð austur fyrir fjall þann 12. ágúst síðastliðinn. Veðurútlit var vægast sagt ekki gott þegar lagt var af stað, en lánið lék við okkur og það stytti upp í hvert sinn sem við stoppuðum, en á leiðinni lentum við nokkrum sinnum í úrhellisrigningu.
Ferðin hófst á Selfossi, þaðan lá leiðin austur að Gunnarsholti og við skoðuðum tvær landgræðslulóðir. Næsti viðkomustaður var í landi Spóastaða og ferðin endaði í landi Hallkelshóla í Grímsnesi.
Lóðirnar voru með afar ólíku sniði, enda landshagir mismunandi og ræktunartíminn var 4-20 ár, og gaman að sjá hvernig tíminn vinnur með ræktandanum.
Áður en lagt var í hann fengu félagsmenn senda stutta könnun og niðurstöður hennar voru notaðar til að skipuleggja ferðamátann.
|
meira... |
| |
9. ágúst 2012 |
Dagskrá sumarferðar Sumarhúsklúbbsins |
23. júlí 2012 |
Sumarferð sumarhúsaklúbbsins 12. ágúst |
9. mars 2012 |
Stjórn Sumarhúsaklúbbsins endurkjörin |
21. febrúar 2012 |
Aðalfundur og fræðsluerindi |
19. september 2011 |
Vel heppnuð fræsöfnunarferð |
14. september 2011 |
Fræsöfnunarferð |
29. ágúst 2011 |
Frá sumarhúsaðferð Sumarhúsaklúbbsins |
15. ágúst 2011 |
Sumarferð á laugardaginn |
3. mars 2011 |
Vel sóttur fyrirlestur og fróðleikur um áburðarnotkun |
15. febrúar 2011 |
Matjurtagarðar á sumarhúsalóðum - útfærslur og jarðvegsbætur |
14. febrúar 2011 |
Fréttir frá Sumarhúsaklúbbi |
14. janúar 2011 |
Aðalfundur Sumarhúsaklúbbsins, fræ og sáning |
10. febrúar 2010 |
Frá aðalfundi Sumarhúsaklúbbsins |
14. janúar 2010 |
Aðalfundur Sumarhúsaklúbbsins |
15. júlí 2009 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Skoðunarferð sunnudaginn 19. júlí |
23. mars 2009 |
Ný stjórn Sumarhúsaklúbbsins |
eldri fréttir
|