14. febrúar 2011

Fréttir frá Sumarhúsaklúbbi

Tjörn í sumarbústaðalandi.

Aðalfundur sumarhúsaklúbbsins var haldinn í Spírunni í Garðheimum fimmtudaginn 10. febrúar.  Mæting var góð, þrátt fyrir vonskuveður og mikill áhugi er fyrir starfi klúbbsins.  Þær Ingibjörg Magnúsdóttir og Súsana Björk Torfadóttir gengu úr stjórninnni, en í þeirra stað gáfu kost á sér þau Þröstur Þorsteinsson skógarvörður á Hellissandi og Edda Magnúsdóttir matvælafræðingur úr Reykjavík. Þau voru kosin með lófaklappi. Formaður er Agnes Hansen. Það var rólegt yfir klúbbnum árið 2010, en ýmislegt er á döfinni árið 2011.   Fundarmenn ræddu um ýmsa viðburði sem stjórninni var falið að boða til.

 Fyrsti viðburðurinn verður fræðslufundur 2. mars n.k., en þar mun Baldur Gunnlaugsson fjalla um matjurtagarða á sumarhúsalóðumÁkveðið var að fara í sumarferð um Borgarfjörðinn laugardaginn 23. júlí og er félagsmönnum bent á að taka daginn frá. Nánari dagskrá verður auglýst þegar nær dregur. Þá var ákveðið að fara í haust og skoða skógrækt á Hellissandi og safna þar trjáfræi undir leiðsögn skógarvarðarins, Þrastar Þorsteinssonar. Þá var einnig samþykkt að kanna áhuga félagsmanna á námskeiði í grjóthleðslum.

Þegar aðalfundarstörfum var lokið skoðuðu fundarmenn frælista GÍ og báru saman bækur sínar um ræktunina yfir kaffibolla.

 

 

Agnes Hansen


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta