 |
| Ekki slæmt að fá góðar hugmyndir að grillaðstöðu í ferðum á vegum félagsins. |
Sumarferð Sumarhúsklúbbsins verður farin laugardaginn 20. ágúst. Að þessu sinni verður ferðinni heitið í Borgarfjörðinn. Farið verður frá Breiðholtskirkju í Mjódd „indíánatjaldinu“, kl 9:00. Heimsóttar verða þrjár áhugaverðar sumarhúsalóðir sem hafa verið lengi í ræktun. Fyrsti viðkomustaður er hjá Stefáni Teitssyni í Ölveri. Þaðan er haldið í Borgarnes og komið við í Garðyrkjustöðinni Gleym-mér-ei. Þar er m.a. að finna yfir 1100 tegundir fjölærra plantna. Úr Borgarnesi er haldið í bústað Jenna R. Ólasonar, skammt ofan við Borgarnes og síðasti viðkomustaðurinn er hjá Steinunni Pálsdóttur í Álftártungu á Mýrum, um 30 mín akstur frá Borgarnesi. Rúta leggur af stað kl. 9 frá Breiðholtskirkju í Mjódd (ekki er gert ráð fyrir einkabílum), komið til Reykjavíkur aftur á milli 16 og 17. Verð kr. 3,000,- Vinsamlegast tilkynnið þátttöku með tölvupósti á gardurinn@gardurinn.is sem allra fyrst.
Verið klædd eftir veðri og takið með ykkur nesti til dagsins.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins eða hjá Agnesi, formanni klúbbsins agnes@menntaborg.is eða í síma 897-9584.
|