Sumarhúsaklúbburinn stóð fyrir fræsöfnunarferð laugardaginn 17. september í blíðskaparveðri í Esjuhlíðum.
Leiðsögumaður var Dr. Aðalsteinn Sigurgeirsson forstöðumaður Rannsóknarstöðvar skógræktar á Mógilsá.Hann tók á móti hópnum við Rannsóknarstöð skógræktar á Mógilsá. Þar sýndi hann einfaldar aðferðir til þess að sá fræi beint í jörð, bæði þar sem gróðurþekja er lítil og einnig þar sem rjúfa þarf grasþekju. Síðan var haldið í skógargöngu þar sem hópurinn skoðaði og fræddist um þær fjölmörgu tegundir sem þar er að finna, bæði sjaldgæfar og algengar. Félagsmenn söfnuðu fræi af mörgum tegundum, í stöku tilfellum af trjám sem felld voru vegna grisjunar. Þáttakendur tóku matarhlé í skóginum og Aðalsteinn bauð upp á kaffi.
Dagurinn var í alla staði ánægjulegur og ekki er loku fyrir það skotið að efnt verði til samskonar ferðar að ári.