Viltu gerast áskrifandi?

     
10. júní 2013

Matjuraklúbburinn á Facebook

Rabarbara er víða hægt að taka upp núna og e.t.v. einhverjir þegar búnir að því.
Kæru félagar í Matjurtaklúbbi Garðyrkjufélagsins.

 

Nú fer í hönd sá tími þar sem hvað mest er að gera í matjurtagarðinum (þótt fyrr hefði verið vegna veðurs) og við öll á karfi í ræktun.

Þá getur verið skemmtilegt að vera í sambandi við félagana til þess að geta spurt ráða, sagt frá hvað maður er að sýsla í garðinum og sýnt myndir og montað sig, svona eins og gengur. 

Í því skyni að auðvelda félögum klúbbsins að eiga samskipti þá hefur stjórn Matjurtaklúbbsins stofnað hóp á Facebook sem heitir: Matjurtaklúbbur Garðyrkjufélagsins.

 

Við hvetjum alla félaga í Matjurtaklúbbnum sem eru á Facebook að smella sér í hópinn og taka þátt í umræðum, setja inn myndir, spurningar og vangaveltur.

Við vitum að það eru ekki allir á Facebook, en þessi leið er sú sem er auðveldust þannig að sem flestir geti lagt eitthvað til málanna og því er hún farin, frekar en að stofna sérstaka síðu á vefnum einhvers staðar annra staðar. Við vonum að þið sem ekki notið Facebook skiljið þetta og þið getið auðvitað kíkt á síðuna með því að smella á: https://www.facebook.com/groups/667211753292875/

 

Við sendum bestu ræktunarkveðjur til félaga Matjurtaklúbbsins og vonumst til að sjá ykkur í hópnum á Facebook.

Við munum svo hefja dagskrá funda þegar haustar.

 

Bestu kveðjur

Brynhildur Bergþórsdóttir

formaður

 

meira...
 

 
2. maí 2013

Útsæðissala 8. og 9. maí

Enn er til afgangur af  Premier og möndluútsæði hjá Matjurtaklúbb GÍ.  Útsæðið verður selt í dag 8. maí og á morgun fimmtudaginn  9. maí að  Dalsá í Mosfellsdal

 

Leiðin að Dalsá:  Af Vesturlandsvegi er ekið inn á Þingvallaveg.  Dalsá er á öðrum afleggjara til hægri eftir að komið er inn í Mosfellsdalinn. Afgreiðslan fer fram í sólgulum skúr sem er á hlaðinu.

  

 

Munið að hafa félagsskírteinin meðferðis.

 

Kartöfluræktendum er bent á lesa greinina Til kartölfuræktenda sem eru um kartöfluhnúðorm, sem er að finna á heimasíðunni undir Blómi vikunnar eða með því að smella hér.   

 

 

meira...
 

 
16. apríl 2013

Fyrstu skrefin í matjurtarækt- 24. apríl kl. 19:30

Matjurtagarðurinn - fyrstu skrefin í matjurtarækt

Margar spurningar vakna þegar ætlunin er að hefja matjurtarækt.  Hvað þarf garðurinn að vera stór? Hvað eiga beðin að vera stór? Hvernig á að undirbúa moldina? Hverju á að sá og hversu miklu af hverri tegund? Á að forrækta? Hvenær á að planta út?

 

Formaður matjurtaklúbbsins, Brynhildur Bergþórsdóttir mun halda fyrirlestur um: Fyrstu skrefin á matjurtarækt, miðvikudaginn 24. apríl kl. 19:30 í  safnaðarheimili Neskirkju.

 

Verð kr. 500 fyrir GÍ félaga og makra og leigjendur grenndargarða á vegum félagsins og maka þeirra.

Kr. 1000,- fyrir aðra. 

 

Allir velkomnir.

 

 

 

meira...
 

 
9. apríl 2013

Útsæðisdagurinn föstudaginn, 26. apríl

Eins og undanfarin ár, verður Matjurtaklúbbur Garðyrkjufélagsins með útsæði til sölu fyrir félagsmenn, föstudaginn 26. apríl að Dalsá í Mosfellsdal, frá kl. 16:00 til kl. 19:00. Í ár verður félagið m.a. með: Möndlu, bláar, Ben Lomond, Premier, Gullauga og Rauðar íslenskar . 

Útsæðið verður selt í 500 og 1000 gramma pakkningum. 

 

Leiðin að Dalsá:  Af Vesturlandsvegi er ekið inn á Þingvallaveg.  Dalsá er á öðrum afleggjara til hægri eftir að komið er inn í Mosfellsdalinn. Afgreiðslan fer fram í sólgulum skúr sem er á hlaðinu.

  

 

Munið að hafa félagsskírteinin meðferðis.

 

Kartöfluræktendum er bent á lesa greinina Til kartölfuræktenda sem eru um kartöfluhnúðorm, sem er að finna á heimasíðunni undir Blómi vikunnar eða með því að smella hér.   

 

 

meira...
 

 
8. apríl 2013

Sáðdagatal og bók um lífræna ræktun

Sáðdagatal 2013 fæst nú á skrifstofu Garðyrkjufélagsins ásamt bókinni Maria Thuns Havebog sem fjallar um lífræna ræktun matjurta. Báðar bækurnar fjalla um sáningu og uppskeru skv. stöðu himintungla.

 

Sjá nánar undir hnappnum Verslun hérna vinstra megin á síðunni.

 

 

 

 

 

 

meira...
 

 
11. mars 2013

Lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsinu - fyrirlestur 21. mars

Góð skilyrði eru fyrir ýmsa óværu þegar sólin hitar upp í gróðurhúsinu.
Heimilisgróðurhúsið er draumastaður fyrir ræktandann
.  Þar inni skapast notalegt loftslag til að njóta gróðurs og samveru. En það eru fleiri en mannfólkið sem kunna að meta þessar aðstæður, alltaf má eiga von á óboðnum gestum í formi alls kyns lúsa, maura og hvað þetta nú heitir.

 

Gunnþór Guðfinnsson garðyrkjufræðingur mun halda fyrirlestur um lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsum á vegum Matjurtaklúbs Garðyrkjufélagsinsfimmtudaginn 21. mars kl. 19:30 í Safnaðarheimili Neskirkju.

 

Aðgangseyrir er kr. 500,-  fyrir félagsmenn í Garðyrkjufélaginu,

1000 kr. fyrir aðra.

 

 

meira...
 

 
7. febrúar 2013

Nýjar tegundir í matjurtaræktun og aðalfundur Hvanna 14. febrúar

Næpur og fleiri rótarávextir eru vinsæl í ræktun.
Aðalfundur Matjurtaklúbbsins Hvanna
verður haldinn fimmtudaginn 14. febrúar kl 19:30 í Spírunni, Garðheimum.

Eftir venjuleg aðalfundarstörf heldur Jóhanna B. Magnúsdóttir erindi um nýjar og óvenjulegar tegundir í matjurtagörðum hér á landi.

 

 

 

 

 

 

 

meira...
 

 
27. apríl 2012

Útsæðisdagurinn er á laugardaginn, 28. apríl

Það er auðvelt og skemmtilegt að rækta eigin kartöflur og geta tekið upp eftir þörfum.
Eins og undanfarin ár, verður Matjurtaklúbbur Garðyrkjufélagsins með útsæði til sölu fyrir félagsmenn, laugardaginn 28. apríl Dalsá í Mosfellsdal, frá kl. 13:00 til kl. 16:00. Í fyrra tókst félaginu að verða sér út um 10-15 mismunandi sortir frá viðurkenndum framleiðendum.  Í ár verður félagið m.a. með: Möndlu, bláar, Ben Lomond, Premier, Gullauga, Rauðar íslenskar og vonandi nokkrar fleiri sortir.  Útsæðið er selt í 500 og 1000 gramma pakkningum.

 

Leiðin að Dalsá:  Af Vesturlandsvegi er ekið inn á Þingvallaveg.  Dalsá er á öðrum afleggjara til hægri eftir að komið er inn í Mosfellsdalinn. Afgreiðslan fer fram í sólgulum skúr sem er á hlaðinu.

 

Munið að hafa félagsskírteinin meðferðis.

 

Kartöfluræktendum er bent á lesa greinina Til kartölfuræktenda sem eru um kartöfluhnúðorm, sem er að finna á heimasíðunni undir Blómi vikunnar eða með því að smella hér

 

  

meira...
 

 
16. mars 2012

Stutt námskeið um ræktun matjurta í heimilsgörðum

6. mars 2012

Námskeið í ræktun mat- og kryddjurta

2. mars 2012

Námskeið í rætkun matjurta - auka námskeið

20. febrúar 2012

Námskeið um ræktun matjurta í heimilisgörðum

17. febrúar 2012

Aðalfundur Matjurtaklúbbsins

10. ágúst 2011

Skoðunarferð 17. ágúst

13. maí 2011

Útsæði til sölu á plöntuskiptidag

4. maí 2011

Fyrirlestur um matjurtarækt

3. maí 2011

Annar og síðari dagur í útsæðissölu

26. apríl 2011

Útsæðissala / skipti á laugardaginn

19. apríl 2011

Útsæðissöludagur GÍ

13. apríl 2011

Námskeið um ræktun matjurta á Siglufirði

4. apríl 2011

Fyrirlestur um lífræna ræktun í heimilisgörðum á Klaustri

9. mars 2011

Námskeið um ræktun matjurta í Mosfellsdal

9. mars 2011

Námskeið um ræktun matjurta á Grundarfirði

25. febrúar 2011 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Aðalfundur Matjurtaklúbbsins og fræðslufundur


eldri fréttir