Nú er komið að því að skrá sig til þátttöku í Norrænu rósahelginni sem verður hér á landi 27.-29. júlí í sumar. Dagskráin er þéttskipuð eins og sjá má.
Skráning og þátttökugjald
Meðlimir Rósaklúbbsins fá þátttökugjaldið að hluta niðurgreitt og þurfa aðeins að greiða breytilega kostnaðinn, þ.e.a.s. fyrir mat og veitingar í ferðinni. Þeir þurfa ekki að greiða fyrir flutninga og salarleigu á morgunráðstefnu þann 27. júlí og umsýslukostnað vegna skráningar. Gjaldið er þannig Kr. 28.000.- ef verið er með alla dagana. Innifalið í því er auk ráðstefnunnar er morgunkaffi, hádegisverður í Café Flóru á föstudeginum 27. júlí, hátíðarveisla á laugardagskveldinu 28. júlí og grillveisla á lokadegi helgarinnar 29. júlí svo og nestismatur í hádeginu og kaffiveitingar á skoðunarferðum alla dagana.
Fyrir þá sem ekki hafa tök á að vera með alla dagana er hægt að skrá sig til þátttöku einstaka daga eða dagshluta. Þá er þátttökugjaldið sem hér segir:
- Föstudagurinn 27. júlí kr. 7.000.- Þátttaka í morgunráðstefnunni eingöngu er möguleg og kostar þá kr. 4300.
- Laugardagurinn 28. júlí kr 14.000.-
- Sunnudagurinn 29. júlí kr.14.000.- Þátttaka í lokagrilli í Brekkukoti eingöngu er möguleg og er gjaldið þá kr. 7.000 enda komi menn á eigin bílum.
Íslenskir þátttakendur þurfa að skrá sig á heimsíðu Rósahelgarinnar!
http://www.yourhost.is/nordisk-rosenweekend/startsida.html
Þar er krækja undir yfirskriftinni ,,Íslenskir þátttakendur" að skrá sig á.
Þátttakendur þurfa að skrá sig fyrir 15. júní og greiða þátttökugjald fyrir 1. júlí til að geta verið með. Þátttökugjald verður ekki endurgreitt.
Ekki er hægt að ábyrgjast að fleiri en 35 íslenskir þátttakendur rúmist í rútubifreiðum á skoðunarferðum og hátíðarkvöldverði.
Dagskrá Norrænu rósahelgarinnar:
Föstudagurinn 27. júlí. 8:30 - 18:00
Norræna rósahelgin hefst með morgunráðstefnu föstudaginn 27. júlí kl 8:30 í ráðstefnusal Hvammur á Grand Hótel Reykjavík (sjá dagskrá fyrir neðan). Á ráðstefnunni verður:
- Norræna rósahelgin formlega sett
- Sagt frá leit að gömlum og harðgerðum rósayrkjum á Norðurlöndum,
bollalagt um aukin skipti milli rósafélaganna á efnivið og
framlag Norðurlandanna til rósamenningar í heiminum.
Sænski rósasérfræðingurinn Lars-Åke Gustavsson og höfundur hin fræga þriggja binda verks Rosor för Nordiska Trädgårdar verður aðal fyrirlesari ráðstefnunnar.
Að lokinni ráðstefnunni verður gengið upp í Grasagarð Reykjavíkur í Laugardal og snæddur hádegisverður í Café Flóru. Á eftir verður Grasagarðurinn skoðaður undir leiðsögn starfsmanns og endað í Rósagarðinum. Að því loknu verður rútuferð í tilraunagarð Rósaklúbbsins í Höfðaskógi í Hafnafirði, hann skoðaður og komið til baka um kl 18:00.
Laugardagurinn 28. júlí 8:30-22:00
Lagt verður upp kl. 8:30 í garðaskoðunarferð frá Grand Hótel Reykjavík og farið á þremur rútum í sex garða á Höfuðborgarsvæðinu. Ekki er æskilegt að fólk komi á einkabílum vegna hættu á öngþveiti. Fyrir hádegi verða skoðaðir garðar:
- Jóhanns Pálssonar og Hrafnhildar Jónsdóttur í Logafold 88,
- Steinunnar Ólafsdóttur í Vogalandi 16 og
- Kristleifs Guðbjörnssonar og Margrétar Ólafsdóttur í Arkarholti 4, Mosfellsbæ.
Hádegisnesti verður snætt í Guðmundarlundi í Kópavogi.
Eftir hádegið verða skoðaðir garðar:
- Jóns M. Vilhelmssonar og Steinunnar Gísladóttur í Tjarnarflöt 8 í Garðabæ, Sigurðar Þórðarsonar og Sigrúnar Andrésdóttur við Markarflöt 15 og loks garður
- Ingibjargar Magnúsdóttur og Sigurðar Guðmundssonar að Sunnuflöt 22.
Gengið verður á milli þessara garða sem eru nálægt hver öðrum en rútur flytja þá sem vilja á milli garða.
Rútur koma tilbaka á Grand Hótel um kl 18:00.
Um kvöldið verður hátíðarkvöldverður á Víkinni, Sjóminjasafni Reykjavíkur við Grandagarð og hefst kl 19:30. Rútur aka frá Grand Hótel Reykjavik fyrir erlenda gesti og þá sem vilja kl 19:20. Þátttakendur verða að koma sér á eigin vegum heim frá Víkinni að loknum kvöldverði um kl 22:00.
Sunnudagur 29. júlí 9:00 - 21:30
Lagt verður af stað kl 9:00 frá Grand Hótel Reykjavík og ekið austur fyrir fjall. Komið verður að gamla Garðyrkjuskólanum að Reykjum í Ölfusi og skoðað tilraunasafn garðplantna á vegum Yndisgróðursverkefnisins undir leiðsögn Samsonar Harðarsonar, verkefnistjóra og formanns Rósaklúbbsins.
Síðan verður haldið til Ólafs S. Njálssonar að garðplöntustöðinni Náttahaga og stöðin skoðuð og snætt hádegisnesti ef veður leyfir. Síðan verður haldið áfram og austur og ekið sem leið liggur um Grímsnes og til Þingvalla þar sem erlendir gestir verða fræddir um þann sögufræga stað undir leiðsögn. Það verður svo haldið um Grafning og stuttu stoppi við virkjunarsvæði Nesjavallavirkjunar og þaðan vestur yfir eldhryggina norðan Hengils, niður Mosfellsheiðina og að Hafravatni. Þar verður lokaþáttur helgarinnar skoðun á safni skógar- og ávaxtatrjáa svo og rósasafni og í lokin grillveisla í Brekkukoti, sumarlandi fjölskyldu Vilhjálms Lúðvíkssonar, formanns Garðyrkjufélags Íslands og Norræna rósafélagsins. Reiknað er með að rútur komi heim á hótel um 21:30.
____________________________
|