15. október 2010

Árlegur rósapöntunarfundur á fimmtudag

R. Morden Sunrise á góðum degi í efri byggðum Reykjavíkur.
Stjórn Rósaklúbbsins boðar til fundar um rósapantanir vegna næsta n.k fimmtudag 21. október kl 20:00 í Spírunni í Garðheimum. Garðplöntusölum verður boðið að  kynna úrval sitt á næsta ári. Einnig verður starfsáætlun klúbbsins á komandi ári kynnt á fundinum.

 

Stjórn Rósaklúbbsins hefur gert samkomulag við sænska garðplöntufyrirtækið Flora Linnea í Helsingborg sem gerir meðlimum Rósaklúbbsins kleyft að velja rósir af heimasíðu fyrirtækisins og sameina innkaup á hagstæðum kjörum. Skrifstofa Garðyrkjufélagsins mun annast móttöku pantana. Plöntunum koma í mars til landsins rótþvegnar og með heilbrigðisvottorði. Aðstaða til pottunar og tímabundinnar vörslu verður hjá Gróðrarstöðinni Þöll í Hafnafirði.

 

Fyrirtækið Flora Linnea er staðsett á athafnasvæði byggðasafnanna í Fredriksdal í Helsingborg og byggir m.a. á samstarfi við Fredriksdals Rosarium sem Lars-Åke Gustavsson stofnaði. Það sérhæfir sig í sölu rósa sem endurspegla m.a. rannsókna starf Lars-Åke Gustavson og býður alls um 830 tegundir, tegundablendinga og fjölblendingsyrki af bæði þekktum og mörgum sjaldgæfum gerðum. Heimasíða fyrirtækisins http://www.floralinnea.se/  er sérlega aðgengileg og unnt að flétta upp ítarlegum upplýsingum um hverja einustu tegund og velja úr litum og flokkum rósa á auðveldan hátt. Félagar geta svo sent skrifstofunni nöfnin á þeim rósum sem þeir hafa áhuga á. Þá fylgir hér með listi yfir hátt í hundrað rósayrki sem taldar eru harðgerar á svæði H5 eða harðari samkvæmt sænska kerfinu og yfirleitt ættu að vera sæmilega öruggar hér á landi ef vel er sæmilega er búið að þeim. Sumar rósirnar í flokki H4 hafa einnig reynst ágætlega hér á landi en ekki er mælt með rósum í flokkum með lægra H- númer.

 

Frestur til að velja rósir af listanum eða tilkynna skrifstofunni um nöfn af heimasíðu Flora Linnea er til 31 október 2010. Rétt er að athuga að haustsala á rósum er mjög lífleg hjá Flora Linnea og viðbúið að einstaka tegundir geti selst upp áður en Rósaklúbburinn kemur sinni pöntun að. Því eru félagar hvattir til að panta sem fyrst.  Athugið að hér er um einstakt tækifæri að ræða til að ná í sum rósayrki sem ekki eru almennt á boðstólnum hér á landi.

Reikna má með að hver planta kosti á bilinu kr. 2500 þær ódýrari og allt að kr. 3500 fyrir þær sem dýrari eru. Endanleg verð ráðast af gengisþróun og samningum um flutninga. Staðfestingargjald verður innheimt þegar ljóst er um möguleika á afhendingu frá Flora Linnea.  

Smellið hér til að sækja rósapöntunareyðublað 2010 

 

Félagar í Garðyrkjufélagi Íslands sem ekki eru í Rósaklúbbnum en hafa áhuga, geta skráð sig í klúbbinn með því að senda tölvupóst á gardurinn@gardurinn.is

Árgjald í Rósaklúbbinn er 500 krónur.

 

 

 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta