 |
| Austin rósin ´Mary Rose´ þéttfyllt og stórblóma. |
Haustfundur Rósaklúbbsins var haldinn í gærkvöldi í Spírunni í Garðheimum. Á fundinum voru kynntar áhugaverðar rósir sem klúbbfélögum gefst kostur á að panta þetta haustið. Einungis var unnt að sína brotabrot af þeim rósum sem eru á boðstólum hjá Flora Linnea. Sérstaklega var vakin athygli á því að hjá Flora Linnea er hægt að nálgast tegundarósir og tegundablendinga sem ekki hafa verið á boðstólum hér á landi. Frestur til að skila pöntun til Garðyrkjufélagsins er til 30. október. Þeir sem sóttu fundinn gátu nálgast lista yfir þær rósir sem verða á boðstólum næsta vor hjá Garðheimum, Blómaval og Nátthaga. Óli Njálsson kynnti þær rósir sem hann verður með í sölu á næsta ári. Í kaffihléinu voru á boðstólum gómsætar kræsingar frá Spírunni og mæltist það vel fyrir. Að loknu hléi hélt Vilhjálmur Lúðvíksson fróðlegt erindi um Nordisk Rosenweekend sem haldin var í Gautaborg í júlí síðast liðnum. Sýndi hann þar skemmtilegar myndir úr þeim görðum sem heimsóttir voru og benti á áhugaverðar rósir sem hann rakst á í ferðinni. Ágætis innlegg fyrir þá klúbbfélaga sem mættir voru á fundinn og sem hug hafa á að panta frá Flora Linnea í Svíþjóð.
Hægt er að nálgast glærur með myndum og lýsingum á nokkrum rósum inn á Rósapöntunarsíðu Rósaklúbbsins.
Smellið hér til að sækja rósapöntunareyðublað 2010
|