|
Garðaskoðun 10. júlí 2005 kl 13:00 - 17:00
Þegar flogið er yfir Reykjanesið er garðagróður og gróðursæld ekki það fyrsta sem manni dettur í. En þegar komið er inn í Reykjanesbæ blasa við garðar með fjölbreyttum gróði þar sem mismunandi litir og angan gefa lífinu sannarlega gildi. Miklar breytingar hafa orðið á undanförnum árum, nú kappkosta flestir að rækta garðinn sinn svo fljótt sem verða má, ólíkt því sem hér var áður. Tréveggir, pallar, heitir pottar, álfar, ljósapollar, grjót og margt fleira setja orðið sterkan svip á garðana,. Tegundaúrval plantna er orðið ótrúlega fjölbreytt og aukin þekking á ræktun gerir Reykjanesbæ að fallegri gróðurvin. Á bak við þetta allt er ótrúleg vinna, en Reykjanesið er ekki auðveldasti staður á jarðríki til rækta fjölbreyttan gróður.
Í ár verða átta garðar opnir félagsmönnum og öðrum gestum til skoðunar. Garðarnir eru bæði gamalgrónir með ýmsum skemmtilegum plöntum og nýlegir garðar með áhugaverðum lausnum í hönnun og notkun plantna.
Sá háttur er hafður á í Garðaskoðunni að fólk kemur á sínum bílum og byrjar að skoða þann garð sem þeim hentar og svo þann næsta og næsta. Gestabók liggur frammi í hverjum garði og hvetjum við gest að til sýna garðeigendum þá virðingu að skrá nöfnin sín bókina.
Kort af Reykjanesbæ, þar sem opnu garðarnir eru merktir inná, liggur frammi í öllum görðunum.
Eftirfarandi garðar eru opnir til skoðunar:
Njarðvíkurbraut 3, Innri – Njarðvík
Eigandi: Svanhvít Guðmundsdóttir
Kirkjubraut 2, Innri – Njarðvík
Eigendur: Guðríður Helgadóttir og Sigurður G. Sigurðsson Hraunsvegur 6, Ytri – Njarðvík
Eigendur: Guðfinna Arngrímsdóttir og Sigurjón Þórðarson.
Hraunsvegur 8, Ytri – Njarðvík
Eigendur: Linda Helgadóttir og Gunnar Ágúst Halldórsson
Klapparstígur 4, Ytri – Njarðvík
Eigendur: Guðbjörg Marteinsdóttir og Hermann Jakobsson, Marteinn B. Sigruðsson og Guðfinna Jónsdóttir.
Freyjuvellir 3, Keflavík
Eigendur: Guðveig Sigurðardóttir og Guðmundur Guðbjörnsson
Grænigarður 12, Keflavík
Eigandi: Sigrún Hauksdóttir
Smáratún 40, Keflavík
Eigendur: Áslaug Hilmarsdóttir og Trausti Björnsson
|