Myndirnar sem hlutu viðurkenningu:

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ljósmyndari: Sunneva Birgisdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ljósmyndari: Sigurður Ægisson

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ljósmyndari: Ósk Eiríksdóttir

 

Viðurkenningar verða afhentar á fræðslufundir 17. nóv. kl 20:00 í sal Orkuveitu Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1.

 

Ljósmyndasamkeppni í tilefni 120 ára afmælis félagsins

Í tilefni af 120 ára afmæli Garðyrkjufélaga Íslands efnir félagið til ljósmyndasamkeppni með yfirskriftinni GRÓÐUR TIL GAGNS OG GLEÐI.  Fólk er hvatt til að taka fram myndavélina og beina linsunni að gróðri og garðmenningu í öllum sínum fjölbreytileika. Heimasíða félagsins verður aðalvettvangur fyrir upplýsingar um keppnina.  Ljósmyndir sem berast verða birtar þar reglulega og úrslit keppninnar verða kynnt á þeim vettvangi í haust.

 

Fyrirkomulag keppninnar

Ljósmyndakeppninni var hleypt af stokkunum 1. júlí sl. og stendur til 15. september í haust. Þátttaka er öllum opin. Dómnefnd skipa tveir fulltrúar frá GÍ og einn atvinnuljósmyndari. Veittar verða þrjár viðurkenningar fyrir bestu myndirnar að mati dómnefndar. Úrslit keppninnar verða tilkynnt á ráðstefnu Garðyrkjufélags Íslands 8. okt. nk.

Reglur um þátttöku

Ljósmyndum ber að skila bæði á pappír (13 x 18 cm eða stærri) og á tölvudisk lágmarksupplausn 360 punktar.

Ekki er heimilt að gera breytingar á myndinni með tölvuvinnslu.

Ljósmyndirnar mega ekki hafa birst opinberlega.

Garðyrkjufélagið áskilur sér rétt til að nýta myndirnar í starfi félagsins án greiðslu.

 

Nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Garðyrkjufélagsins. Sími: 552 7721, netfang: gardurinn@gardurinn.is.