|
23. nóvember 2012 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Námskeið í gerð aðventukransa |
 |
| Félagar geta valið úr úrvali af skrauti í ýmsum litum | Blómaskreytingaklúbbur GÍ býður félögum Garðyrkjufélagsins upp á námskeið í gerð aðventukransa.
Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 6. desember frá kl. 19:00 til 22:00. Þátttakendur vefja eigin krans og skreyta að eigin vali. Félagar geta valið hvort þeir gera 30 eða 40 cm hurðarkrans eða aðventukrans fyrir kerti. Ath. kertin sjálf eru ekki innifalin, en hólkur eða statív fyrir kerti fylgir.
Námskeiðið verður haldið að Hátúni 6, vinstra megin við inngang á blómaverkstæðinu í bílskúrnum á Álftanesi.
Leiðbeinandi: Valborg Einarsdóttir.
Nauðsynlegt er að félagar skrái þátttöku á gardurinn@gardurinn.is eða í símum 552-7721/896-9922 eigi síða en 3. desember. Verð kr. 4,900,-
Akstursleið: Ekið er eftir Álftanesvegi beint áfram í gegnum hringtorgið á Bessastöðum. Þá beygt fyrstu beygju til vinstri (inn Eyvindastaðaveg) síðan þriðju beygju til hægri inn Hátún, inn í enda hægra megin.
|
meira... |
| |
6. júlí 2012 |
Blómaskreytingar fyrir Norrænu rósahelgina |
 |
| Skreytingarnar verða í náttúrulegum stíl með rósum. | Blómaskreytingaklúbburinn hefur tekið að sér að gera blómskreytingar úr rósum fyrir Norrænu Rósahelgina, sem verður haldin hér á landi dagana 27. til 29. júlí.
Félagar koma saman á föstudeginum 27. júlí, kl. 17:00 (ath. breytt dagsetning) til að úbúa skreytingar úr rósum sem á að nota á Rósahelginni. Unnið verður að gerð skreytinganna fram eftir kvöldi.
Vinsamlegast tilkynnið þátttöku á gardurinn@gardurinn.is
Staðsetning: Hátún 6, Álftanes
|
meira... |
| |
2. apríl 2012 |
Frá aðalfundi Blómaskreytingaklúbbs |
Aðalfundur Blómaskreytingaklúbbsins var haldinn í Spírunni í Garðheimum miðvikudaginn 21. mars 2012.
Í ársskýrslu klúbbsins kom fram að félagar í klúbbnum eru nú 217.
Félagar sáu um að skreyta miðbæjartorgið í Hveragerði þann 23. júní fyrir sýninguna Blóm í bæ. Þá stóð klúbburinn fyrir námskeiðum í gerð aðventukransa á Höfn í Hornafirði, á Álftanesi og á höfuðborgarsvæðinu fyrir atvinnulausa, allt í nóvember 2011.
Núverandi stjórn gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu og var fráfarandi stjórn þökkuð vel unnin störf.
Vegna lélegrar mætingar klúbbfélaga á aðalfund var ekki hægt að kjósa í nýja stjórn, aðeins fjórir mættu á fundinn.
Verkefni klúbbsins á þessu ári eru að sjá um skreytingar fyrir sýninguna Blóm í bæ í Hveragerði í lok júní, sjá um skreytingar fyrir Norrænu Rósahelgina í lok júlí og jafnvel haustkransa- og/eða jólakransanámskeið.
Þeir félagar sem hafa áhuga á stjórnarsetu í Blómaskreytingaklúbb, eru beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins.
|
meira... |
| |
15. mars 2012 |
Aðalfundur Blómaskreytingaklúbbsins |
Aðalfundur Blómaskreytingaklúbbsins verður haldinn miðvikudaginn 21. mars kl. 19:30 í Spírunni í Garðheimum.
Dagsrká:
1. Ársskýrsla
2. Kosning stjórnar
3. Fræðsluerindi
Núverandi stjórn gefur ekki kost á sér til áframhaldandi setu, því er hér með auglýst eftir áhugasömum og öflugum klúbbfélögum til að gefa kost á sér í stjórn klúbbsins. Hefð er fyrir því hjá klúbbum félagsins að hafa 3-4 viðburði á ári. Undanfarin ár hefur Blómaskreytingaklúbburinn fengið það verkefni að sjá um skreytingar á Miðbæjartorginu í Hveragerði fyrir hátíðina Blóm í bæ, þá hefur klúbburinn verið með haust- og jólakransanámskeið og ýmislegt fleira. Starfsemi klúbba og deilda innan Garðyrkjufélagsins byggir nánast á starfandí stjórn hverju sinni.
|
meira... |
| |
24. nóvember 2011 |
Námskeið í gerð aðventukransa |
Blómaskreytingaklúbbur GÍ býður félögum Garðyrkjufélagsins upp á námskeið í gerð aðventukransa.
Námskeiðið verður miðvikudaginn 30. nóvember frá kl. 19:00 til 22:00. Þátttakendur vefja eigin krans og skreyta að eigin vali. Geta valið hvort þeir gera 30 eða 40 cm hurðarkrans eða aðventukrans fyrir kerti. Ath. kertin sjálf eru ekki innifalin, en hólkur eða statív fyrir kerti fylgir.
Að þessu sinni verður námskeiðið haldið að Hátúni 6, vinstra megin við inngang á blómaverkstæðinu í bílskúrnum á Álftanesi.
Leiðbeinendur verða blómskreytarnir: Bertha Karlsdóttir og Valborg Einarsdóttir.
Nauðsynlegt er að félagar skrái þátttöku á gardurinn@gardurinn.is eða í símum 552-7721/896-9922 sem allra fyrst og taki fram hvort þeir vilja gera hurðakrans eða aðventukrans fyrir kerti.
Verð kr. 4,900,-
Akstursleið: Ekið er eftir Álftanesvegi beint áfram í gegnum hringtorgið á Bessastöðum. Þá beygt fyrstu beygju til vinstri (inn Eyvindastaðaveg) síðan þriðju beygju til hægri inn Hátún, inn í enda hægra megin.
|
meira... |
| |
22. júní 2011 |
Vantar blómaskreyta í Hveragerði |
Blómaskreytingaklúbb GÍ vantar tilfinnanlega sjálfboðaliða til að skreyta miðbæjartorgið í Hveragerði (sama torg og í fyrra, fyrir framan apótekið) á morgun fimmtudaginn 23. júní, frá kl. 9:30 til 17.
Faglærðir sem ófaglærðir eru hjartanlega velkomnir sem og allir aðrir sem eru reiðubúnir að aðstoða á einhvern hátt, svo sem gróðursetningu á sumarblómum og fleiru. Þetta er mjög gefandi og skemmtilegt verkefni að taka þátt. Ath., nauðsynlegt er að taka með sér verkfæri, t.d. rósaklippur, vírklippur, hníf og jafnvel sög og hamar!
Þema sýningarinnar í ár er skógurinn.
Félagar eru hvattir til að skrá sig sem allra fyrst á gardurinn@gardurinn.is eða í síma 896-9922.
|
meira... |
| |
11. mars 2011 |
Rósasýning í Garðheimum |
 |
| Starfsfólk Garðheima verður í góðum gír um helgina. | Rósasýning Garðheima verður haldin helgina 12. og 13. mars n.k., um leið og Brúðkaupssýning Garðheima fer fram. Á RÓSASÝNINGUNNI verða sýnd 40 – 50 afbrigði af íslensk ræktuðum rósum, rósir ræktaðar hér á landi þykja með eindæmum litfagrar og fallegar og getum við verið hreykin af okkar íslensku rósaræktendum, en nánast allar rósir sem fást á Íslandi eru ræktaðar hér. Íslenskir rósabændur eru duglegir að fara á sýningar erlendis og velja ný afbrigði til ræktunar. Úti í hinum stóra heimi eru risafyrirtæki sem sérhæfa sig að vinna að kynblöndun til að mæta markaðnum í tilbreytingu og fegurð rósa.
Minnum félaga á að félagsskírteini GÍ gefur þeim 10% afslátt á Spírunni.
|
meira... |
| |
12. nóvember 2010 |
Fyrirlestrar og sýnikennsla í aðventu- og jólaskreytingum |
 |
| Fyrsti sunnudagur í aðventu er 27. nóvember. | Miðvikudaginn 24. nóvember og fimmtudaginn 25. nóvember verða fyrirlestrar og sýnikennsla á vegum Blómaskreytingaklúbbsins í aðventu- og jólaskreytingum á Spírunni á 2. hæð í Garðheimum frá kl. 19-21.
Miðvikudaginn 24. nóv. mun Ásdís V. Pálsdóttir blómaskreytir flytja fyrirlesturinn og vera með sýnikennslu, en Bertha Karlsdóttir blómskreytir flytur fyrirlesturinn og verður með sýnikennslu fimmtudaginn 25. nóvember.
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum, aðgangur er ókeypis - engin skráning - bara mæta tímanlega til að tryggja sér gott sæti!
Þátttakendur fá afsláttarmiða af skreytingarefni sem tengjast fyrirlestrinum, sem gildir í verslun Garðheima sama kvöld. Verslunin verður opin til kl. 22 bæði kvöldin. Spíran bistro verður með létt kvöldverðartilboð og kaffiveitingar fyrir þátttakendur frá kl. 18:30.
|
meira... |
| |
27. október 2010 |
Námskeið í aðventuskreytingum á Reykjum |
1. september 2010 |
Ikebana sýning í Garðheimum |
26. júní 2010 |
Skreytingar á sýningunni Blóm í bæ |
10. júní 2010 |
Vantar blómskreyta fyrir sýninguna Blóm í Bæ |
12. maí 2010 |
Fundur vegna blómaskreytinga á sýningunni Blóm í bæ |
26. mars 2010 |
Íslandsmeistarakeppni í blómaskreytingum |
16. mars 2010 |
Ný stjórn blómaskreytingaklúbbs |
10. febrúar 2010 |
Aðalfundur Blómaskreytingaklúbbs |
9. febrúar 2010 |
Grunnnámskeið í blómaskreytingum - Hvanneyri |
20. nóvember 2009 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Námskeið í jólakransagerð |
20. júlí 2009 |
Frábærar blómaskreytingar á sýningunni "Blóm í bæ" |
29. maí 2009 (1 lesandi hefur sagt álit sitt) |
Vantar sjálfboðaliða á hátíðina Blóm í Bæ |
14. apríl 2009 |
Páskaskreytingar úr birki |
30. mars 2009 |
Námskeið í páskaskreytingum á miðvikudag |
17. mars 2009 |
Ný stjórn í Blómaskreytingaklúbb |
11. mars 2009 |
Grunnnámskeið í blómaskreytingum |
eldri fréttir
|