 |
| Fyrsti sunnudagur í aðventu er 27. nóvember. | Miðvikudaginn 24. nóvember og fimmtudaginn 25. nóvember verða fyrirlestrar og sýnikennsla á vegum Blómaskreytingaklúbbsins í aðventu- og jólaskreytingum á Spírunni á 2. hæð í Garðheimum frá kl. 19-21.
Miðvikudaginn 24. nóv. mun Ásdís V. Pálsdóttir blómaskreytir flytja fyrirlesturinn og vera með sýnikennslu, en Bertha Karlsdóttir blómskreytir flytur fyrirlesturinn og verður með sýnikennslu fimmtudaginn 25. nóvember.
Fyrirlestrarnir eru opnir öllum, aðgangur er ókeypis - engin skráning - bara mæta tímanlega til að tryggja sér gott sæti!
Þátttakendur fá afsláttarmiða af skreytingarefni sem tengjast fyrirlestrinum, sem gildir í verslun Garðheima sama kvöld. Verslunin verður opin til kl. 22 bæði kvöldin. Spíran bistro verður með létt kvöldverðartilboð og kaffiveitingar fyrir þátttakendur frá kl. 18:30.
|