11. mars 2009

Grunnnámskeið í blómaskreytingum

Guðrún Brynja Bárðardóttir, blómaskreytir
Þann 19. og 20. mars verður haldið Grunnnámskeið í blómakskreytingum hjá Landbúnaðarháskóla Íslands á Reykjum (gamli Garðyrkjuskóli ríkisins í Hveragerði). 
Námskeiðið er einkum ætlað áhugafólki um blómaskreytingar og ófaglærðum sem vinna til dæmis í blómaverslunum eða hafa það í hyggju. Hámarksfjöldi þátttakenda er 12.
Fjallað verður um helstu tegundir afskorinna blóma, nemendur fá verklega kennslu við skáskurð, hreinsun stilkanna og meðhöndlun afskorinna blóma eftir mismunandi tegundum. Kennt verður hvernig á að búa til einfalda blómvendi og ganga frá þeim. Þá verður fjallað um einfaldar borðskreytingar. Eins verður rík áhersla lögð á góða nýtingu á efni sem og fagmannleg vinnubrögð gagnvart viðskiptavininum.

 

Kennari: Guðrún Brynja Bárðardóttir brautarstjóri blómaskreytingabrautar LbhÍ.

Tími: Fimmtudagur 19. mars og föstudagur 20. mars 2009 kl. 09:00-16:00 á Reykjum, Ölfusi (18 kennslustundir).

Verð: 25.900kr. (efni innifalið)
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 4.900kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590.
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000

 


Til baka

Senda á Facebook


SKRIFAÐU ÁLIT ÞITT

Fyrirsögn

Álit

Hvað er 2+3?

Undirskrift 



SENDA ÞESSA FRÉTT Í TÖLVUPÓSTI

Netföng viðtakenda:


  

Skilaboð

Hvað er 2+3?

Nafn sendanda:


yfirlit frétta