Viltu gerast áskrifandi?

     
6. maí 2013

Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar, 16. maí

Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar verður haldinn fimmtudaginn 16.maí kl. 19:30 á Löngumýri.

Venjuleg aðalfundarstörf. Kaffiveitingar.

Fræðsluerindi flytur Gunnþór Guðfinnsson garðyrkjufræðingur og fjallar m.a. um lífrænar varnir í heimilisgróðurhúsum, um lífræna ræktun og moltugerð.

Fræðsluerindið er öllum opið. Frítt fyrir félagsmenn en 1000 kr fyrir aðra.  

Nýir félagar velkomnir.

 

 

meira...
 

 
16. október 2012

Fræðsluerindi á Sauðárkrók 23. október

Snælenja er fallegt tré sem dafnar ágætlega hér á landi. Myndin er tekin í garðagöngu á vegum félagsins í Hveragerði.
Garðyrkjufélag Íslandsefnir til fræðsluerindis á Kaffi Krók 23. október kl. 19:30
.

Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélagsins flytur erindi sem hann nefnir „Rót vandans“.  Þar mun hann meðal annars fjalla um nokkra helstu lykilþætti í ræktun, til að mynda  jarðveg og jarðvegsgerð og þær kröfur sem plöntur gera til jarðvegs. Þá verður kennt hvernig á að bera sig að við upptöku trjágróðurs til flutnings, gróðursetningar og áburðargjöf.  Fróðlegt erindi fyrir allt áhugafólk um garðyrkju.

 

Verð 1000 kr. en 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ og félaga í Garðyrkjufélagi Skagafjarðar.  Kaffiveitingar. Allir velkomnir.

 

 

 

meira...
 

 
11. júní 2012

Blómabasar í kvöld, þann 11. júlí

Garðyrkjufélag Skagafjarðar verður með sinn árlega basar við K.S. í Varmahlíð í kvöld, mánudaginn 11. júní kl. 20:30.

Allir velkomnir.

meira...
 

 
15. september 2011

Fundur hjá Garðyrkjufélagi Skagafjarðar

Fundur hjá Garðyrkjufélagi Skagafjarðar

 

Rabbfundur um fyrirhugaða ferð á Vestfirðina næsta sumar verður haldinn

miðvikudagskvöldið 21.september kl. 20:30 í Flugumýrarhvammi.

Myndir úr ferðinni okkar í Borgarfjörð og á Akranes verða í tölvunni.

Kaffi í boði stjórnarkvenna.

Rabbfundur um fyrirhugaða ferð á Vestfirðina næsta sumar verður haldinn

miðvikudagskvöldið 21.september kl. 20:30 í Flugumýrarhvammi.

Myndir úr ferðinni okkar í Borgarfjörð og á Akranes verða í tölvunni.

Kaffi í boði stjórnarkvenna.

 

 

meira...
 

 
22. júlí 2011

Garðaskoðun 28. júlí

Þá er komið að garðaskoðuninni hér heima í héraði.

Hún er ákveðin fimmtudagskvöldið 28.júlí kl. 19:30.  Það eru 3 bæir á Langholtinu sem verða heimsóttir að þessu sinni.

Við byrjum á Syðra – Skörðugili hjá Ásdísi, þaðan förum við til Hjördísar í Geldingarholti og endum hjá Ragnheiði í Marbæli þar sem þessar heiðurskonur ætla að bjóða okkur upp á kaffisopa í garðinum.

Vonumst til að sjá sem flesta og velkomið að taka gesti með sér.

 

 

 

meira...
 

 
1. júlí 2011

Sumarferð Garðyrkjufélags Skagafjarðar

Úr Skallagrímsgarði.

Ferð sumarsins verður farin laugardaginn 9.júlí í Borgarfjörð og til Akraness.

Lagt verður af stað kl. 8:00 frá N1 á Sauðárkróki og kl. 8:30 úr Varmahlíð.

Takið með ykkur nesti fyrir fyrri hluta dagsins. Fargjald 2500 kr. Velkomið að taka með sér gesti.

 

Skráning fyrir 5.júlí og nánari upplýsingar:

Sigrún H. Þorsteinsdóttir

s. 8462475 / 4538255 eða á flugherji@internet.is 

 Branddís Benediktsdóttir

s. 8698465 / 4613716  og á  vbbb@simnet.is

 

 

meira...
 

 
24. júní 2011

Lummudagar í Skagafirði

Glæsilegar hostur í beði.
G
arðyrkjufélag Skagafjarðar
verður með blómabasar hjá Nátturufræðistofu á götumarkaði á laugardaginn 25. júni, frá 14:15-17:00. Allir velkomnir.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

meira...
 

 
26. apríl 2011

Fræðslufundur um ræktun ávaxtatrjáa í Skagafirði

Íslenskar plómur á rigningardegi í ágúst.
Skógræktarfélag Skagafjarðar og Garðyrkjufélag Skagafjarðar bjóða upp á fræðslufund um ræktun ávaxtatrjáa,  fimmtudaginn 28. apríl, kl. 20:00 á Hótel Varmahlíð.

Jón Þ.Guðmundsson garðyrkjufræðingur frá Akranesi heldur fyrirlestur um ræktun og umhirðu eplatrjáa og annarra ávaxtatrjáa.

Allir velkomnir.   Aðgangseyrir kr. 800, boðið verður upp á  kaffi og léttar veitingar í hléi. 

   

meira...
 

 
26. mars 2011

Aðalfundur Garðyrkjufélags Skagafjarðar

3. ágúst 2010

Garðaskoðun í Skagafirði

5. júlí 2010

Sumarferð Garðyrkjufélags Skagafjarðar

1. júní 2010

Blómabasar í Varmahlíð

30. apríl 2010

Aðalfundur og fræðslufundur í Skagafirði

9. apríl 2010

Námskeið í ræktun mat- og kryddjurta

25. febrúar 2010

Matjurtanámskeið á Löngumýri í Skagafirði

27. apríl 2009

Aðalfundur og fræðsluerindi á Löngumýri

23. maí 2008

Aðalfundur Garðyrkjudeildar Skagafjarðar

5. júní 2007

Blómabasar

26. apríl 2007

Aðalfundur Garðyrkjudeildar Skagafjarðar