Þegar ég fer út að ganga með hundinn á ég það til að kíkja í garða sem verða á leið minni. Í kvöld gekk ég framhjá óvenju fallegum garði, þ.e.a.s. ég hef gengið framhjá þessum garði næstum á hverjum degi í mörg ár og oftast stoppað eða hægt á ferðinni til að njóta dýrðarinnar sem er síbreytileg. Það sem vakti athygli mína í kvöld var hálfvisin planta á lóðamörkum með fræhirslum sem eru í laginu eins og blóm með 5 krónublöðum. Þegar ég kom heim var ég með nokkrar fræhirslur í vasanum og eitt máttllaust lauf í hendinni. Ég get ómögulega munað hvernig þetta fjölæra blóm leit út í sumar. Laufið er með löngum mjóum flipum og plantan er ca. 40-50 cm há. Mér finnst endilega að ég eigi að vita hvaða blóm þetta er. Mér datt í hug bóndarós, en laufið passar ekki við bóndarósirnar í mínum garði. Sendi tvær myndir til skýringar. Getur einhver frætt mig um hvaða blóm þetta er?
Kær kveðja, Margrét
Ath. smellið á titil fréttar til að sjá alla fréttina. - Einnig nánar undir liðnum umræður/ spjall.
Fullþroskuð fræ af trjábóndarósinni við Frakkastíg. Fræ af henni hafa áður verið á frælista félagsins og verða greinilega aftur í vor. Eins og sjá má á myndinni eru fræin nokkuð stór.
Í árg. 2008 af Garðyrkjuritinu er grein um trjábóndarósina við Frakkastíg.
Hundurinn Ægir situr hjá umræddri plöntu, sem trúlega er trjábóndarós.
Blað og fræbelgir af umræddri plöntu. Sjá nánar undir liðnum Umærður/spjall hérna vinstra megin á síðunni.