Kona úr vesturbænum sendii okkar eftirfarandi uppskrift, sem hún segir að virki vel gegn ýmissi óværu, svo sem lús of fleira.
1 dl fljótandi brúnsápa
1 dl sódavatn
1,8 líter vatn
Brúnsápan og sódavatnið er sett á tveggja lítra flösku og síðan fyllt upp með vatni. Þennan lög notar hún til að vökva með snemma vors, t.d. í gróðurhúsinu til að drepa óværur í moldinni. Eftir að plöntur eru farnar að laufgast, úðar hún þessu yfir þær.
|