![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
Haustlaukar
Haustlaukar árið 2009 Garðyrkjufélag Íslands hefur gert mjög góðan góðan samning við bæði Blómaval og Garðheima um haustlauka og telur hag félaga betur borgið með þessum hætti. Þessi fyrirtæki munu bjóða félögum Garðyrkjufélagsins 20% afslátt af öllum haustlaukum gegn framvísun félagsskírteinis. Félagar sem búa úti á landi geta pantað beint frá báðum aðilum og við munum staðfesta félagsaðild þeirra. Haustlaukarnir eru væntanlegir í báðar verslanirnar mánaðarmótin ágúst - september og geta félagar pantað haustlauka af heimasíðum beggja fyrirtækjanna. Bæði fyrirtækin leggja áherslu á fjölbreytt úrval. Eftir sem áður stefnir félagið að því að vera með fróðleik og góð ráð um þá lauka sem í boði eru.
Smellið á lógo fyrirtækjanna til að komast á heimasíður þeirra.
Myndir með haustlaukalista GÍ 2008 pdf skjal, skjalið er stórt og er smá stund að opnast ath. ekki er lengur hægt að panta af þessum lista.
Myndir með haustlaukalista GÍ 2007 - ath. ekki er lengur hægt að panta af þessum lista. Ath. að skjalið er stórt og er smá stund að opnast. |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||