Viltu gerast áskrifandi?

     
3. maí 2013

Fyrirlestur um ræktun og klippingu ávaxtatrjáa

Rétt klipping eykur uppskeru ávaxtatrjáa og berjarunna.
Á undanförnum árum hefur verið vaxandi áhugi á ræktun ávaxtatrjáa hér á landi. Ný yrki skjóta upp kollinum og aukin þekking vex með ári hverju.
Fimmtudagskvöldið  9. maí kl 19:30 verður flutt fræðsluerindi í Glerárkirkju á Akureyri.

Carl J. Gränz formaður ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur og munu fjalla í máli og myndum um ræktun og klippingar á ávaxtatrjám.

Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi.

Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir félaga í Garðyrkjufélaginu en 1000 kr. fyrir aðra.

Allir velkomnir.

Fræðslukvöldið er samstarfsverkefni Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélag Íslands, Lystigarðsins á Akureyrar og Garðyrkjufélags Akureyrar.

 

 

meira...
 

 
16. apríl 2013

Aðalfundur Garðyrkjufélags Akureyrar 2. maí

Aðalfundur Garðyrkjufélags Akureyrar - Eyjafjarðardeildar Garðyrkjufélags Íslands verður haldinn í Gömlu Gróðrarstöðinni við Krókeyri fimmtudaginn 2.maí  kl. 19:30-21:30.

Að loknum venjuegum aðalfundastörfum fjallar Hrafnhildur Vigfúsdóttir um spírur og annað hollt og gott.

Nánar er nær dregur.  Félagar eru hvattir til að fjölmenna.

 

meira...
 

 
7. febrúar 2013

Fyrirlestur um berjarunna og rósir á Ólafsfirði 12. febrúar

Við ræktun berjarunna, skiptir máli hversu mikil uppskeran er.
Garðyrkjufélag Íslands
í samstarfi við Fjallabyggð og Dalvíkurbyggð efna til fræðsluerindis í Tjarnarborg Ólafsfirði  þriðjudagskvöldið  12. febrúar kl. 19:30.

 

Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélagsins flytur erindi sem hann nefnir „Berjarunnar og rósir“.  Fjallað verður um nokkra helstu lykilþætti hvernig hægt er að auka blómgun og aldinmyndun berjarunna og rósa með grisjun og klippingum.

 

Verð kr 1,000 kr og 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ.

 

Allir velkomnir.

 

 

meira...
 

 
18. október 2012

Fyrirlestur á Dalvík 22. október

Ungt eplatré, Malus ´Transparent Blanche´ í blóma á Álftanesi.
Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri
Garðyrkjufélagsins flytur erindi sem hann nefnir Rót vandans í Menningarhúsinu Bergi, við

Goðabraut á Dalvík mánudagskvöldið 22. október

kl. 19:30. Þar mun hann meðal annars fjalla um nokkra helstu lykilþætti í ræktun, til að mynda jarðveg og jarðvegsgerð og þær kröfur sem plöntur gera til jarðvegs. Þá verður kennt hvernig á að bera sig að við upptöku trjágróðurs til flutnings, gróðursetningar og áburðargjöf.

Verð kr 1,000 kr og 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ. Boðið upp á léttar kaffiveitingar í hléi. Fyrirlesturinn er öllum opinn, nýir félagar velkomnir.­­­

Fyrirlesturinn tekur um tvo tíma með hléi. 

 

Ath.: Sami fyrirlestur verður fluttur á Akureyri, fimmtudagskvöldið 18. október kl. 19:30 í Gamla húsmæðraskólanum, Þórunnarstræti 99 á Akureyri

 

meira...
 

 
12. október 2012

Fyrirlestur á Akureyri 18. október

Fallegur glótoppur.
Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri
Garðyrkjufélagsins flytur erindi sem hann nefnir Rót vandans  í Gamla húsmæðraskólanum,

Þórunnarstræti 99 á Akureyri fimmtudagskvöldið 18. október

kl. 19:30.  Þar mun hann meðal annars fjalla um nokkra helstu lykilþætti í ræktun, til að mynda  jarðveg og jarðvegsgerð og þær kröfur sem plöntur gera til jarðvegs. Þá verður kennt hvernig á að bera sig að við upptöku trjágróðurs til flutnings, gróðursetningar og áburðargjöf.

 

Verð kr 1,000 kr og 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ.  Boðið upp á léttar kaffiveitingar í hléi.  Fyrirlesturinn er öllum opinn, nýir félagar velkomnir.­­­

Fyrirlesturinn tekur um tvo tíma með hléi.

 

Ath.: Sami fyrirlestur verður fluttur  mánudagskvöldið 22. október kl. 19:30.

Menningarhúsinu Bergi, við Goðabraut á Dalvík

meira...
 

 
15. maí 2012

Plöntuskiptidagur í Lystigarðinum 20. maí

Frá plöntuskiptideginum á sl. ári.
Garðyrkjufélag Akureyrar ætlar að standa fyrir plöntuskiptidegi á sunnudaginn, 20. maí, kl 10:30-11:30 í gróðurhúsinu í Lystigarðinum.

Komið með plöntur sem þið eigið yfirdrifið nóg af eða viljið losna við og fáið aðrar í staðinn. Kostar ekkert og heitt verður á könnunni. Allskonar plöntur velkomnar, fjölærar, einærar, matjurtir, kryddjurtir, blóm, runnar og tré.

Skiptastjóri verður Hrafhildur Vigfúsdóttir.

 

meira...
 

 
30. mars 2012

Fréttir af aðalfundi Eyjafjarðardeildar

Hrafnhildur Vigfúsdóttir fráfarandi gjaldkeri gerir grein fyrir ársreikningum félagsins.
Aðalfundur GA Eyjafjarðardeildar var haldinn 
á þriðjudagskvöldið í Húsmæðraskólanum á Akureyri, fundurinn var fámennur en afar góðmennur.  Lögum félagsins var breytt þannig að nú eru tveir varamenn í stjórn í stað þriggja áður. Reyndar var það núna svo ánægjulegt að færri komust að í stjórn en vildu og var kosið á milli manna.  Eftirfarandi skipa nú nýja stjórn:

Stjórn Garðrykjufélags Akureyrar - Eyjafjarðadeildar skipa:

Kristín Þóra Kjartansdóttir, formaður

Sigríður Hrefna Pálsdóttir, gjaldkeri

Sigurvin Jónsson, ritari

Hrafnhildur Vigfúsdóttir, varamaður

Sigríður Örvarsdóttir, varamaður

Valgerður Jónsdóttir hjá Norðurlandsskógum var kjörin skoðunarmaður reikninga félagsins.

Helgi Þórsson og Jóhann Thorarensen hurfu frá stjórnarstörfum en þeir hafa báðir setið í stjórn sl. 4 ár eða frá því félagið var endurreist vorið 2008. Þeim var þakkað sérstaklega fyrir mjög vel unnin störf í þágu félagsins. Hrafnhildi Vigfúsdóttur þökkum við fyrir að halda utanum peningamálin síðasta árið og Björgvini Steindórssyni fyrir skoðun á ársreikningi félagsins, en hann hefur haft það með höndum síðustu ár.

 

Smellið á meira, til að sjá ársskýrslu deildarinnar fyrir starfsárið 2011 - 2012.  

 

 

meira...
 

 
21. mars 2012

Aðalfundur Garðyrkjuféalgs Akureyrar - Eyjafjarðardeildar GI

Aðalfundur Garðyrkjufélags Akureyrar - Eyjafjarðardeildar Garðyrkjufélags Íslands verður haldinn þriðjudaginn 27. mars, klukkan 20-22  í Gamla Húsmæðraskólanum/AkureyrarAkademíu við Þórunnarstræti á Akureyri

 

Dagskrá fundarins: 

1.  Skýrsla stjórnar fyrir starfsárið 2011.

2.  Skýrsla gjaldkera.

3.  Kosning um lagabreytingu: að 4. grein laga félagsins verði breytt þannig að þar sem nú stendur “...þrír menn” standi hér eftir “...tveir menn”, þannig að á varamannabekk stjórnar séu hér eftir tveir en ekki þrír eins og verið hefur.

4.  Kosning aðalmanns stjórnar til tveggja ára.

5.  Kosning varamanns stjórnar til tveggja ára.

6.  Annað / Umræður um starfsemina á árinu

 

Að þessu loknu mun Helgi Þórsson í Kristnesi fræða fundarfólk um berjaræktun.

 

Fundarstjóri: Sigríður Hrefna Pálsdóttir

 

Félagar eru sérstaklega kvattir til þess að fjölmenna á fundinn. Nýir félagar að sjálfsögðu velkomnir. Fólki er bent á nýta fundinn til þess að koma óskum um viðburði og uppákomur á komandi starfsári félagsins á framfæri við nýja stjórn.

 

Smellið á meira, til að sjá ársskýrslu fyrir starfsárið 2011 - 2012.

 

 

meira...
 

 
1. mars 2012

Leyndardómurinn á bak við farsæla sáningu

7. september 2011

Kartöflur - fjölbreytni í matreiðslu

9. ágúst 2011

Námskeið í geymslu og nýtingu grænmetis og ávaxta

20. júlí 2011

Garðarölt 26. júlí á Akureyri

4. júlí 2011

Heimsókn til býflugnabónda

15. júní 2011

Stuttmyndasýning á Akureyri

10. júní 2011

Rölt um matjurtagarða Akureyrar

31. maí 2011

Námskeið í gerð fíflavíns!

31. maí 2011

Frá plöntuskiptidegi

26. maí 2011

Plöntuskiptadagur í Lystigarðinum á Akureyri

18. maí 2011

Vel heppnað hænsnavapp

16. maí 2011

Hænsnavapp!!

16. maí 2011

Frá fyrirlestri um ávaxtatrjáaræktun

6. maí 2011

Sumardagskrá Garðyrkjufélags Akureyrar – Eyjafjarðardeildar 2011

26. apríl 2011

Frá aðalfundi Eyjafjarðardeildar

12. apríl 2011

Námskeið í ræktun matjurta


eldri fréttir