|
|
 |
Garðagöngur Garðyrkjufélagsins sumarið 2013
Garðagöngur félagsins eru yfirleitt á miðvikudögum, þó verður ein garðagangan í Hveragerði á laugardegi.
· Miðvikudagur 19. júní, kl. 18:00 – Garðabær
Leiðsögn: Sigurður Þórðarson og Hugrún Jóhannsdóttir.
- Laugardagur 22. júní, kl. 11:00 - Hveragerði
Garðaskoðun, verðlaunagarður og garðasúpa.
Leiðsögn: Kristinn H. Þorsteinsson og Pétur Reynisson.
· Miðvikudagur 3. júlí, kl. 18:00 – Álftanes
Leiðsögn: Valborg Einarsdóttir og Þyri Emma Þorsteinsdóttir
- Miðvikudagur 17. júlí, kl. 18:00 - Reykjavík
Leiðsögn: Kristinn H. Þorsteinsson
· Miðvikudagur 14. ágúst, kl. 18:00 – Reykjavík
Leiðsögn: Carl J. Gränz
Nánar hér er nær dregur.
Garðagöngur Garðyrkjufélagsins sumarið 2012
Gróður og gróðurframvinda í Kálfamóa
6. júní kl. 19:30
Fyrsta ganga sumarsins verður að þessu sinni í Kálfamóa í landi Keldna við Vesturlandsveg.
Árið 1947 gróðursetti Jóhann Pálsson sínar fyrstu plöntur í sumarbústaðalandið Kálfamóa í landi Keldna, þar sem starfrækt er Tilraunastöð Háskóla Íslands. Í 65 ár hefur hann farið ótroðnar slóðir hvað varðar plöntuval. Þetta gamla sumarbústaðaland hefur algjöra sérstöðu í gróðurfari. Jóhann mun segja frá gróðri og þeirri gróðurframvindu sem hefur átt sér stað í gömlu sumarbústaðalandi við Keldur á 65 árum.
Leiðsögn: Jóhann Pálsson grasafræðingur
Mæting stundvíslega kl. 19:30 við innkeyrslu að Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum.
Leiðarlýsing: Ef ekið er eftir Stórhöfða í austur, allt til enda, þá er beygt til vinstri í áttina að Tilraunastöð Háskólans að Keldum og eftir ca. 40 metra er beygt til hægri og þar eru næg bílastæði.
Ath. að vera vel skóuð, því víða verður farið um ótroðnar slóðir.
Rósagarðurinn í Höfðaskógi
11. júlí kl. 18:00
Félögum boðið í göngu um Rósagarðinn í Höfðaskógi, sem er samstarfsverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Skógræktarfélags Hafnarfjarðar. Í Rósagarðinum í Höfðaskógi eru fyrst og fremst ræktaðrar harðgerðar runnarósir svo sem þyrni-, ígul-, fjalla- og meyjarósir, alls um 130 yrki rósa, sem félagar Rósaklúbbsins hafa gróðursett síðan árið 2005. Þetta er kjörið tækifæri til að sjá árangurinn af því hvaða rósir þrífast við erfið skilyrði á Íslandi.
Leiðsögumenn: Vilhjálmur Lúðvíksson og Kristleifur Guðbjörnsson
Mæting kl. 18:00 við Gróðrarstöðina Þöll sem er við Kaldárselsveginn í Hafnarfirði, rétt fyrir innan Íshesta. Til að sjá Kaldárselsveginn á korti, má t.d. fara in á ja.is og slá inn götunafni Dalsás. Fyrir þá sem vita hvar Öldutúnsskóli og Kirkjugarðurinn í Hafnarfirði eru, þá þarf að aka yfir brúna sem liggur yfir Reykjanesbraut frá kirkjugarðinum, þá er strax komið inn í hringtorg og Kaldárselsvegur er við þriðja útafakstursleið út úr hringtorginu.
Álftanes
25. júlí kl. 19:30
Gengið verður í þrjá til fjóra stóra, mismunandi einkagarða félagsmanna í Túnunum á Álftanesi.
Leiðsögn: Valborg Einarsdóttir og Þyrí Þorsteinsdóttir
Mæting kl. 19:30 á bílastæðinu vestan við Álftaneslaug, lítil sjoppa er á planinu sem heitir Bitakot.
Akstursleið: Ekið eftir Álftanesvegi, þegar komið er í hringtorgið hjá Bessastöðum er ekið út úr því á þriðju gatnamótum og inn á Suðurnesveg. Síðan beygt fyrstu beygju til hægri, inn á Breiðumýri. Fljótlega blasir bæði Pylsubarinn Bitakot og Sundlaugin við á hægri hönd.
Rósagarðurinn í Laugardal
15. ágúst kl. 18:00
Nýi rósagarðurinn í Laugardal skoðaður. Garðurinn er samvinnuverkefni Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands, Yndisgróðurs og Reykjavíkurborgar og er tileinkaður Jóhanni Pálssyni, grasafræðing. Þar er að finna yfir 140 yrki af rósum, bjarmarósir (Rosa x alba), Gallarósir (Rosa gallica), meyjarósir (Rosa moyesii), hjónarósir (Rosa sweginzowii), fjallarósir (Rosa pendulina), ígulrósir (Rosa rugosa), þyrnirósir (Rosa spinosissima - syn. R. pimpinellifolia), Austin rósir, finnskar rósir og ýmsar fleiri tegundir og yrki. Auk þess er þar að finna sérstakt safn rósa sem Jóhann Pálsson hefur kynbætt.
Leiðsögn: Samson B. Harðarson landslagsarkitekt
Mæting kl. 18:00 við vatnslistaverkið Fryssu sem er rétt innan við innganginn í Grasagarði Reykjavíkur.
Við hvetjum félaga til að koma með uppástungur að garðagöngum og benda okkur á fallega garða og hverfi sem áhugavert væri að skoða, en fátt er skemmtilegra en að fá kíkja í garða félagsmanna. Á þetta jafnt við um höfuðborgarsvæðið sem og dreifbýlið. Það er ekkert sem mælir gegn því að hafa garðagöngu á fleiri en einum stað á landinu á sama tíma, en það hefur verið gert áður með góðum árangri. Við viljum hvetja hinn almenna félaga til að taka meiri þátt í félagsstarfinu. Þeir félagar sem hafa áhuga á að taka að sér garðagöngu og/eða langar hugsanlega að taka meiri þátt í öðru félagsstarfi eða koma með góðar uppástungur eru góðfúslega beðnir að hafa samband við skrifstofu félagsins.
|