Garðyrkjufélag Íslands er félag áhugafólks um umhverfismál og ræktunarmenningu í byggðum landsins

 

Um félagið

Félagið er stofnað árið 1885 að frumkvæði Georgs Schiebecks landlæknis og er nátengt sjálfstæðisbaráttu landsmanna um aldamótin 1900 og þrá eftir auðugra og betra mannlífi. Stofnun félagsins var snar þáttur í baráttu fyrir bættu heilbrigði og lækkun ungbarnadauða með því að bæta umhverfi og auka hollustu í matarræði landsmanna. Garðyrkjufélagið er næstelstu félagssamtök í landinu og byggir því á gömlum merg.

 

Garðyrkjufélag Íslands byggir þannig á gömlum og grónum gildum sem fela í sér áherslu á sköpunargleði, umhyggju, og þrautseigju við ræktunarstarf og heilbrigða lífshætti. Félagið leitast við að mæta þörf félagsmanna og annarra landsmanna fyrir þekkingu og ráðgjöf um ræktun og ræktunarmenningu við aðstæður á Íslandi.

 

HLUTVERK Garðyrkjufélags Íslands er:

  • Að afla, varðveita og miðla þekkingu og auka áhuga á garðrækt og ræktunarmenningu um land allt.
  • Að stuðla að uppbyggingu fjölbreytts og fagurs gróðurríkis í byggðum landsins og nánasta umhverfi þeirra.
  • Að sameina krafta aðila á sviði garðyrkju og ræktunar til rannsókna, aukinnar fræðslu og fegrunar á hinu byggða umhverfi.
  • Að vera vettvangur félagsmanna til skoðanaskipta, skapandi samveru og miðlunar þekkingar og reynslu í ræktunar- og umhverfismálum.
  • Að leiða saman ólíkar kynslóðir og skapa skilyrði fyrir vaxandi garðyrkjuáhuga ungs fólks.

 

Félagið er opið öllum sem áhuga hafa á hlutverkum og markmiðum félagsins. Félagið starfar í deildum á landsvísu og jafnframt í klúbbum sem myndaðir eru um afmörkuð verkefni. Félagið gefur út ársrit og fjögur fréttabréf árlega sem innifalin eru í árgjaldi félagsins, starfrækir heimasíðu sem opin er félagsmönnum og almenningi. Félagið gengst fyrir mánaðarlegum fræðslufundum sem auglýstir eru opinberlega og í gegnum netpóst til félagsmanna. Félagið styður félagsdeildir sínar með því að senda þeim fyrirlesara þeim að kostnaðarlausu og eftir óskum þeirra. Félagið leitast við að halda uppi öflugu kynningar- og fræðslustarfi um allt er varðar garðyrkju og ræktunarstarf við íslenskar aðstæður og leggur áherslu á samvinnu við þekkingarstofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki sem þjóna garðyrkju og ræktunarstarfi í landinu.

 

Félaginu stýrir 5 manna stjórn og 2 í varastjórn. Hjá félaginu starfar framkvæmdastjóri og aðrir starfsmenn sem ráðnir eru tímabundið eða til lengri tíma eftir efnum félagsins.

 

Félagsaðild fylgja afsláttarkjör hjá ýmsum fyrirtækjum sem versla með vörur sem tengjast ræktunarstarfi. Árgjald félagsins er ákveðið á aðalfundi félagsins sem haldinn er fyrir lok apríl ár hvert.

 

FRAMTÍÐARSÝN

GÍ verði sýnilegt og leiðandi afl í fræðslu um garðrækt, ræktunarmenningu og umhverfismál í þágu almennings í öllum sveitarfélögum á landinu.

Garðyrkjufélag Íslands telur að á næstu 10 árum verði umtalsverð vakning áhuga meðal landsmanna á ræktun og fegrun lands vegna breyttrar landnotkunar og hlýnandi veðurfars og að í lok tímabilsins megi greinilega sjá að þróuð ræktunarmenning og gróðurfjölbreytni einkenni hið byggða umhverfi á Íslandi. Starfsemi GÍ verði orðin öflug í öllum landshlutum og að fjöldi félagsmanna GÍ hafi tvöfaldast í lok tímabilsins. Öflugt samstarf verði milli félagsins og helstu hagsmunaaðila um ræktunarstarf um fræðslustarf, rannsóknir og þróunarstarf í þágu ræktunar í landinu.

 

STEFNA FÉLAGSINS 

  • Félagið mun leggja áherslu á fjölbreytni og fegrun í grænu umhverfi þjóðarinnar og virkja félagsmenn til brautryðjendastarfs á því sviði.
  • Félagið verður vettvangur áhugafólks um ræktun og ræktunarmenningu til yndisauka á landsvísu.
  • Félagið mun efla vitund samfélagsins um mikilvægi gróðurs fyrir andlega og líkamlega heilsu einstaklinga og eiga samstarf við sveitarfélög og opinberar stofnanir í því skyni.
  • Félagið mun beita sér fyrir verndun og útbreiðslu innlendra plantna á válista og virkja félagsmenn til þátttöku í verndun og eflingu líffræðilegs fjölbreytileika í gróðurríki landsins
  • Fleiri áhugahópar um afmörkuð efni tengd ræktun verða stofnaðir innan félagsins.
  • Til að laða að fleiri félaga og efla starfsemina um land allt er mikilvægt að starf félagsins verði lifandi og skemmtilegt.
  • Félagið leggur áherslu á samveru kynslóða til að tryggja yfirfærslu áhuga og þekkingar á ræktunarstarfi.
  • Félagið mun beita sér fyrir samstarfi allra helstu hagsmunaðila á sviði garðyrkju og ræktunar um öflun og miðlun þekkingar með það fyrir augum að efla ræktunarmenningu í landi og að garðyrkja og tengd þjónusta verði öflugur og samkeppnisfær atvinnuvegur.
  • Heimasíða félagsins gardurinn.is verður gerð að öflugri upplýsingaveitu  í þágu félagsmanna og almennings í landinu og stuðlar að auknum samskiptum milli félagsmanna og annarra hagsmunaðila á svið ræktunar með margvísleg áhugamál á landsvísu. 
  • GÍ verður leiðandi afl í samfélaginu og hlutverk félagsins mun njóta viðurkenningar almennings. Þegar umræða varðandi ræktun til yndisauka í nærumhverfi byggðar rís upp verður leitað til félagsins eftir skoðunum þess.