|
9. nóvember 2012 |
Fræðslukvöld á Egilsstöðum 14. nóvember |
 |
| Það skal vanda sem lengi skal standa. |
Miðvikudaginn 14. nóvember kl. 19.30 gengst félagið fyrir fræðslukvöld
í Egilsstaðaskóla á Egilsstöðum.
Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur verður með áhugavert erindi sem hann nefnir ,Rót vandans“. Þar fjallar hann um gróðursetningar, tilfærslu plantna, jarðveg, næringu og fleira.
Erindið er ætlað öllu áhugafólki um ræktun. Allir velkomnir.
Aðgangseyrir er: 1.000 kr en 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ.
|
meira... |
| |
20. apríl 2012 |
Ræktum okkar eigin ber - námskeið á Egilsstöðum |
Námskeið hefst þann: 28.4.2012 Staðsetning: Grunnskólinn Egilsstöðum
Í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands og Félag skógarbænda á Austurlandi
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um ræktun berjarunna bæði til nytja eða til yndis.
Á námskeiðinu verður farið yfir hverjar séu helstu tegundir berjarunna í ræktun hér á landi. Hvernig skuli staðið að útplöntun þeirra með tilliti til sem mestrar uppskeru. Hvernig er best að staðsetja runnana út frá skjóli og birtu. Hverjar eru þarfir mismunandi tegunda með tilliti til jarðvegs, áburðar, klippingar og annarrar umhirðu. Helstu tegundir sem teknar verða fyrir eru rifsættkvíslin, reynir, rósir, jarðarber, hindber, amall, hafþyrnir ásamt fleiri áhugaverðum berjategundum. Rætt verður um helstu meindýr og sjúkdóma í berjaræktun og hvernig best er að verjast þeim. Er hægt að verja uppskeruna fyrir ágengum fuglum? Hvernig á að standa að uppskerunni, á hvaða tíma og hvaða möguleikar eru við geymslu hennar. Rætt verður um úrvinnslu afurðanna og nemendur fá nytsamlegar uppskriftir af réttum þar sem uppskeran leikur stórt hlutverk. Möguleikar á lífrænni ræktun skoðaðir og hvernig hægt er að nota afskurði úr ræktuninni í safnhaugagerð.
Kennari: Jón Kr. Arnarson garðyrkjufræðingur LbhÍ.
Tími: Ný dagsetning er lau. 28. apríl, kl. 10:00-16:30 (7,5 kennslustundir) Grunnskólinn á Egilsstöðum
Verð: 12.500 kr. (Kennsla, gögn og veitingar) fyrir félaga í GÍ og FsA 10.900kr
Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 12.500kr (óafturkræft)(fyrir félaga í GÍ og FsA 10.900kr) á reikninginn 0354-26-4237, kt. 411204-3590.
Umsjón: Björgvin Örn Eggertsson
Skráningar: endurmenntun@lbhi.is (fram komi nafn, kennitala, heimili, sími og nafn námskeiðs) eða hafa samband í síma: 433 5000.
|
meira... |
| |
9. nóvember 2011 |
Allt um ræktun berja, 10. nóvember á Egilstöðum |
 |
|
Margrar nýjar tegundir af berjarunnum vaxa orðið hér á landi, auk þess sem rétt val á yrki skiptir miklu máli.
Á myndinni er gjöfull rifsberjarunni. |
Fyrirlesari: Jón Kr. Arnarson, garðplöntufræðingur (LBHÍ) Dags: Fimmtudagkvöldið 10.nóvember 2011, kl. 20:00 Staður: Grunnskólinn á Egilsstöðum Aðgangseyrir: Aðgangur ókeypis fyrir félaga í Garðyrkjufélagi Íslands, 500 kr. fyrir utanfélagsmenn. Allt berjaáhugfólk velkomið.
"Ber er hver í basli nema berin eigi"
Á skrifstofu félagsins er til bókin Trädgårdens bär eftir Leif Blomqvist. Allt um berjaræktun. Auk hefðbundinna berjategunda er fjallað um hafþyrniber, reyniber, amalber, stikilsber, vínber, rósanýpur, kirsuber, bláber, hindber og fleiri vannýttar tegundir sem hægt er að rækta í heimilisgarðinum. Leiðbeiningar um klippingu, ræktun og ræktunarvandamál og nýtingu uppskerunnar. Fjöldi mynda er í bókinni, bókinn er á sænsku, er vel uppsett og auðlesin. Bókin er 224 bls. Verð: 4.500 krónur.´
Félagar geta pantað bókina á gardurinn@gardurinn.is
|
meira... |
| |
9. ágúst 2011 |
Garðaskoðun í Fellabæ |
 |
| Félagar dáðst að snælenju. | Garðaskoðun á vegum Fljótsdalsdeildar Garðyrkjufélagsins verður
þriðjudaginn16. ágúst. Skoðaðir verða nokkrir áhugaverðir garðar í Fellabæ.
Mæting kl. 20 á planinu hjá Olis. Allir velkomnir.
|
meira... |
| |
16. júní 2011 |
Blómamarkaður 18. júní |
 |
| Plöntuskipti og blómamarkaðir eru sívinsælir hjá félagsmönnum. | Blómamarkaður Fljótsdalshéraðsdeildar Garðyrkjufélagsins - verður haldinn laugardaginn 18. júní klukkan 14:00 til 17:00, á planinu við Fóðurblönduna.
Félagar geta komið með plöntur milli 13:30 og 14:00.
|
meira... |
| |
31. maí 2011 |
Aðalfundur Fljótsdalshéraðsdeildar |
 |
| Félagar eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn. | Aðalfundur Fljótsdalshéraðsdeildar Garðyrkjufélags Íslands verður haldinn miðvikudaginn 1.júní klukkan 20.00 við Alþýðuskólan á Eiðum. Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Dagskrá næsta starfsárs - félagar hvattir til að koma með hugmyndir af áhugaverðum erindum eða viðburðum.
3. Önnur mál
Að fundi loknum verður farið í göngutúr í kringum Húsatjörn undir leiðsögn Hlyns Sigurðssonar, sem er um þessar mundir að vinna verkefni um svæðið
Kvöldið endað með kaffi og léttum veitingum.
Nýjir félagar velkomnir sem og gamlir Eiðanemar og áhugamenn um uppbyggingu Eiðastaðs.
|
meira... |
| |
10. júní 2010 |
Blómamarkaður á Egilsstöðum |
 |
| Spáð og spegulerað í plöntum á plöntuskiptidegi í Grasagarðinum. | Blómamarkaður Garðyrkjufélagsins á Fljótsdalshéraði verður haldinn laugardaginn 12. júní á planinu við Fóðurblönduna, milli kl. 14 og 17. Félagar geta komið með plöntur milli kl. 13:30 og 14:00. |
meira... |
| |
1. júní 2010 |
Aðalfundur og fræðsla um ávaxtatré á Héraði |
 |
| Eplatré með góðri uppskeru! | Aðalfundur Fljótsdalshéraðsdeildar GÍ verður haldinn fimmtudaginn 3. júní kl 20.30. Fundurinn verður haldinn á Gistihúsinu að Egilsstöðum.
Dagskrá: Venjulega aðalfundarstörf
Að aðalfundi loknum mun Helgi Þórsson umhverfisfræðingur flytja erindi um reynslu sína af ræktun ýmiskonar berjarunna, epla- og ávaxtatrjáa.
Nýjir félagar velkomnir
|
meira... |
| |
19. ágúst 2009 |
Fallegustu garðarnir á Fljótsdalshéraði |
19. ágúst 2009 |
Árleg berjaferð á Fljótsdalshéraði |
20. maí 2009 |
Aðalfundur Fljótsdalshéraðsdeildar |
17. mars 2009 |
Fræðslufundur á Egilsstöðum |