Viltu gerast áskrifandi?

     
13. júní 2013

Íbúakynning um fyrirhugaðar endurbætur á Skallagrímsgarði

Boðið er til íbúakynningar í Skallagrímsgarði í Borgarnesi þann 27. júní kl. 16. Þar mun Samson B. Harðarson landslagsarkitekt kynna tillögu sína að endurbótum á garðinum. Vinna við þær endurbætur mun hefjast í ár og ráðgert er að þeim muni ljúka árið 2018.

 

meira...
 

 
6. júní 2013

Föstudagsleiðsögn og ljósmyndasýning

Séð yfir beðið með íslensku flórunni í Grasagarði Reykjavíkur.
Á morgun, föstudaginn 7.júní kl. 13, verður fyrsta föstudagsleiðsögn sumarsins farin um Grasagarðinn en í júní, júlí og ágúst verða almennar leiðsagnir um garðinn alla föstudaga.

 

Á göngu um garðinn verður fjallað um starfsemi garðsins, sögu og þróun. Safndeildir og plöntur skoðaðar sem og áhugaverðar menningarminjar sem garðurinn geymir. Lagt af stað frá aðalinngangi kl. 13 alla föstudaga.

 

Að kvöldi sama dags, föstudaginn 7. júní kl. 20, opnar pólski ljósmyndarinn Marta Niebieszczanska ljósmyndasýninguna .is í Café Flóru. Marta sýnir ljósmyndir sem teknar eru með sígildum aðferðum á filmu og camera obscura. Sýningin stendur til 7. júlí og er opin daglega á opnunartíma Café Flóru 10-22. Marta skrifar einnig fyrir pólsk-íslensku vefsíðuna Iceland News Polska www.icelandnews.is 

 

Nánari upplýsingar um viðburði sumarsins veitir Hildur Arna í síma 846-9276.

 

meira...
 

 
28. maí 2013

Fuglaskoðun 1. júní

Þúfutittlingur. Ljósm.: Björgvin Sigurbergsson.
Hin árlega fuglaskoðunarferð Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður laugardaginn kemur 1. júní í tengslum við bæjarhátíðina “Bjarta daga”. Lagt verður af stað frá bækistöðvum félagsins og Þallar kl. 10.00. Gangan tekur um tvær klukkustundir. Leiðsögumenn verða vanir fuglaskoðarar.

Nánari upplýsingar í síma Skógræktarfélags Hafnarfjarðar: 555-6455.

 

meira...
 

 
21. maí 2013

Morgunn í matjurtagarði Grasagarðs - 25. maí

Matjurtagarður Grasagarðsins er rétt við inngang garðsins.
Morgunn í matjurtagarði Grasagarðs Reykjavíkur - laugardaginn 25. maí kl. 11-13


Á laugardaginn verður líf og fjör í nytjajurtagarði Grasagarðsins. Þá kynna garðyrkjufræðingar garðsins ræktun mat- og kryddjurta. Spurt og spjallað um sáningu, forræktun, útplöntun, umhirðu og annað sem viðkemur ræktuninni. Heitt á könnunni og allir velkomnir!

 

Nánari upplýsingar veitir Hildur Arna í síma 846-9276

 

Með kveðju úr Laugardal.

 

meira...
 

 
14. maí 2013

Handverkssýning 18. maí í Þöll

Viðarvinir verða með handverkssýningu á tálguðum, renndum og útskornum munum í Selinu, bækistöðvum Skógræktarfélags Hafnarfjarðar og Þallar við Kaldárselsveg, milli kl. 10.00 – 18.00 laugardaginn 18. maí.

 

Gróðrarstöðin Þöll opnar aftur sama dag.

 

Allir velkomnir.

 

Nánari upplýsingar í síma Skógræktarfélags Hafnarfjarðar: 555-6455.

 

meira...
 

 
30. apríl 2013

Grasagarðurinn - á döfinni í maí

Hundaskógarlilja (Erythronium dens-canis) af Liljuætt (Liliaceae).
Fimmtudagur 2. maí kl. 20
Laukar og hnýði

Í Grasagarðinum hefur náðst góður árangur í ræktun lauk- og hnýðisplantna upp af fræi. Fjallað verður um helstu aðferðir og vandamál sem upp geta komið.  
Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður og Jóhanna Þormar garðyrkjufræðingur

 

 


Sunnudagur 5. maí kl. 11
Fuglalíf
Fjölskrúðugt fuglalífið verður skoðað á göngu um garðinn í samstarfi við Fuglaverndarfélag Íslands.
Hannes Þór Hafsteinsson garðyrkjufræðingur


Laugardagurinn 25. maí kl. 11-13
Morgunn í matjurtagarði

Ræktun og nýting mat- krydd- og lækningajurta kynnt. Garðyrkjufræðingar og annað starfsfólk Grasagarðsins tekur á móti gestum.


Verið velkomin í Grasagarðinn!

 

meira...
 

 
8. apríl 2013

Vorgleði Garðheima helgina 13. og 14.apríl.

 

Vorgleði Garðheima verður haldin helgina 13. og 14.apríl

 

Vorinu er fagnað á Vorgleðinni í Garðheimum.  

 

Á laugardag verður búið að taka upp nýja sendingu af garðrósum. GÍ félagar fá 20% afslátt gegn framvísun félagsskírteinis af rósunum.

 

Einnig verða ýmsar nýjar vörur kynntar, svo sem: 

Glænýtt garðaskraut og ræktunarvörur í nýrri tækjadeild.

Full gróðurhús af kryddplöntum, ávaxtatrjám, garðrósum, sígrænum runnum, berjaplöntum o.fl. sem voru að detta í hús.

Nýjar sendingar af fallegum gjafavörum og heimilispuntuvörum.

Góð tilboð á afskornum blómum.

 

Og að sjálfsögðu -  góðir gestir og snillingar í heimsókn,  kynningar, tilboð og annað spennandi og allir garðyrkjufræðingarnir okkar að vinna þessa helgi til að veita sem besta þjónustu.

Sjá nánar á slóðinni www.gardheimar.is

 

 

 

meira...
 

 
11. mars 2013

Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar 2013

Aðalfundur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar verður haldinn í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar Strandgötu 34, fimmtudagskvöldið 21. mars næstkomandi kl. 20.00.

 

Dagskrá:

1.    Venjuleg aðalfundarstörf.

 

Hlé

 

2.    Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands flytur erindi í máli og myndum sem hann nefnir „Rósir í skjóli skóga - íslenskar og erlendar“.

Félagið býðir upp á kaffiveitingar í hléi. Allir velkomnir.

Stjórnin

 

meira...
 

 
1. mars 2013

Námskeið um ræktun og umhirðu ávaxtatrjáa á Reykjum

5. febrúar 2013

Mótað í snjó í Grasagarðinum á Vetrarhátíð– snjórinn sóttur til fjalla

22. janúar 2013

Lífræn matjurtarækt á Íslandi, þróun hennar og staða - fyrirlestur

9. nóvember 2012

Fræðsluerindi og námskeið í nóvember

1. nóvember 2012

Blómstrandi list 7. nóvember kl. 20

23. október 2012

Afmælisráðstefna SAMGUS 8. nóvember

2. október 2012

Garðaganga á laugardagsmorgun í Hellisgerði í Hafnarfirði

24. september 2012

Sjálfboðaliðadagur Skógræktarfélags Hafnarfjarðar

14. ágúst 2012

Skógar- og útivistardagur fjölskyldunnar

14. ágúst 2012

Ljósmyndasýning í Café Flóru í Grasagarðinum.

5. júlí 2012

Litir blóma í beðum - Grasagarðurinn 8. júlí kl. 13

13. júní 2012

Kvöldganga á Degi villtra blóma, sunnudaginn 17. júní

31. maí 2012

Grasagarður Reykjavíkur - fræðsla og viðburðir í júní

30. maí 2012

Fuglaskoðunarferð á laugardag

22. maí 2012

Alþjóðleg ráðstefna um sjálfbæra nýtingu náttúruauðlinda

14. maí 2012

Handverkssýning á skógarnytjum


eldri fréttir