Alla föstudaga kl. 13 – fræðslugöngur. Í júnímánuði verður boðið upp á vikulegar fræðslugöngur á föstudögum um garðinn. Þátttaka ókeypis og allir velkomnir. Mæting við aðalinngang.
Sunnudagur 3. júní. Síðasti dagur ljósmyndasýningarinnar Fuglablik í Café Flóru. Kaffihúsið er opið daglega frá 10-22.
Fimmtudagur 7. júní kl. 20 Plöntur í skógarbotni. Í Grasagarðinum vaxa fjölmargar plöntur sem eiga uppruna sinn á skógarsvæðum tempraða beltisins nyrðra. Leiðsögn: Jóhanna Þormar garðyrkjufræðingur og Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður.
Sunnudagur 10. júní kl. 11 Opnun ljósmyndasýningar pólska ljósmyndafélagsins Pozytywni á myndum sem félagar hafa tekið í Grasagarðinum. Ljósmyndasýningin stendur til 8. júlí og er opin daglega á opnunartíma Café Flóru 10-22.
Sunnudagur 17. júní kl. 20 Dagur villtra blóma, kvöldganga um Laugarnesfjöru. Árlega er haldið upp á sameiginlegan dag villtra blóma á Norðurlöndum. Í Reykjavík verður gengið um ósnortna fjöruna á Laugarnestanga en þar er gróðurfar fjölbreytt. Plöntur verða greindar til tegunda, fjallað um gróður svæðisins og starfsemi Flóruvina kynnt. Þátttaka er ókeypis. Mæting á Laugarnestanga kl. 20. Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson forstöðumaður.
Þriðjudagur 21. júní kl. 22 Sumarsólstöðutónleikar í Café Flóru Tónlistarkonan Ólöf Arnalds heldur tónleika í Café Flóru í tilefni sumarsólstaða.
|