Árlega er haldið upp á sameiginlegan Dag villtra blóma á Norðurlöndunum. Í Reykjavík býður Grasagarðurinn upp á kvöldgöngu um Laugarnesfjöru, sunnudaginn 17.júní kl. 20. Gengið verður um ósnortna fjöruna á Laugarnestanga en þar er gróðurfar fjölbreytt. Plöntur verða greindar til tegunda, fjallað um gróður svæðisins og starfsemi Flóruvina kynnt.
Mæting á Laugarnestanga kl. 20. Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir.
Ath! Þeir sem eiga plöntuhandbækur og stækkunargler eru hvattir til að taka þau með í gönguna.
Leiðsögn: Hjörtur Þorbjörnsson, forstöðumaður Grasagarðsins.