Myndatextar

tulipani naermynd1.jpg          

Nærmynd af yrkinu ‘Apeldoorn’ tekin á Húsavík vorið 2004.

 

tulipanabreida2.jpg               

Gul túlípanabreiða í túninu heima á Hólum.

 

jon jonsson.jpg                                  

Jón Jónsson garðyrkjufræðingur og sérstakur áhugamaður um túlípanaræktun.                                       

 

Túlípanaræktun á Íslandi í 50 ár

 

Hér hefst svo greinin sjálf sem gæti t.d. fjallað um túlípanana og ræktun þeirra o.s.frv. Þetta eru leiðbeiningar um hvernig greinum skal skilað inn sem eiga að fara í Garðyrkjuritið, Garðinn sem kemur út sem fylgiblað með Morgunblaðinu (Mbl. kálf), Blóm vikunnar, fréttabréf félagins o.s.frv.

 

Gott er að semja millifyrirsagnir öðru hvoru til að auðvelda lesturinn, sérstaklega ef um lengri greinar er að ræða. Gæta skal þess að öll latnesk plöntuheiti séu með skáletri í handriti. Gott er að nota Times New Roman letur, 12 pt. og stilla á Normal.  Ekki nota mismunandi stílsnið í word-skjalinu eins og Heading o.s.frv. Ekki setja myndirnar með í skjalið, umbrotsmaðurinn sér um það.

 

Meðal grein eða þægileg lengd af grein er t.d. eins og  fyrir Blóm vikunnar, sem er yfirleitt um 3000 til 4000 þúsund slög með stafabilum.  Lengri greinar geta verið allt að 5- 8000 slög og yfirleitt er eingöngu ein grein í hverju blaði eða riti sem er um 15 þúsund slög, sem gæti þá t.d. verið opnugrein í Mbl. kálfinum ásamt 3-4 myndum.

 

Myndir

Efst á fyrstu blaðsíðu greinarinnar eru nöfn myndanna, sem mega ekki innihalda íslenska stafi og fylgja með greininni svo og myndatextarnir sem fylgja eiga með greininni í viðkomandi blað. Til að fyrirbyggja myndarugling er nauðsynlegt að nöfn myndanna vísi til greinarinnar. Stærð mynda fyrir prentun þarf að vera a.m.k. 200-300 KB, eigi þær að vera stórar í prentun (t.d. forsíðumyndir) þurfa þær að vera allt að 2-3000 KB.  Mjög lítil upplausn dugir með greinum sem eingöngu birtast í vef upplausn á heimasíðu félagsins.

 

Mynd af höfundi

Lítil mynd af  höfundi þarf að fylgja með greinum í Garðyrkjuritið, ásamt smá upplýsingum um viðkomandi hvernig hann tengist garðyrkju, svo sem  menntun / áhugamál / fyrri störf. – Sjá einnig í eldri Garðyrkjuritum.  

 

Greinar ásamt myndum má senda í tölvupósti á gardurinn@gardurinn.is ef margar myndir fylgja greinum er betra að fá greinina ásamt myndunum sent á disk til Garðyrkjufélags Íslands, Frakkastíg 9, 101 Reykjavík.

 

Lesið handritið vel yfir með tilliti til stafsetningar. Það sparar mikla vinnu á síðari stigum en auðvitað lesum við allar greinar vel yfir áður en þær eru sendar í umbrot.

 

Greinar um allt er lítur að gróðri og garðrækt eru vel þegnar frá félögum Garðyrkjufélagsins sem og fagmönnum.

 

 

Jón Jónsson