|
1. maí 2013 |
Vorvaka EMBLU í Stykkishólmi 9.maí |
Vorvaka EMBLU - Sumarið bankar á - Sáning og uppskera
Vorvaka Emblu verður haldin á Hótel Stykkishólmi
uppstigningardag, þann 9. maí 2013 frá kl. 14 - 16:30.
Húsið opnar kl. 13:30
Dagskrá:
- Guðrún Tryggvadóttir frá natturan.is fjallar um eldhúsgarðinn
- Gunnþór K. Guðfinnsson garðyrkjufræðingur fjallar um
grunnatriðin í ræktun mat- og kryddjurta
- Hlé - Tónlistaratriði
- Molta. Fræðsla frá Íslenska gámafélaginu um Moltuna í Stykkishólmi.
- Guðrún Tryggvadóttir fjallar um nýtingu villtra mat- og lækningajurta í nærumhverfinu.
Sölu- og kynningarefni frá versluninni Skipavík, Garðyrkjufélagi Íslands, natturan.is og fleirum.
Boðið verður upp á smakk úr villtri náttúru.
Kaffi og léttar veitingar verða seldar í hléi, verð 850 krónur.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.
|
meira... |
| |
22. nóvember 2012 |
Fyrirlestur í Stykkishólmi fimmtudaginn 22. nóvember |
 |
| Litskrúðugt haustlauf. | Garðyrkjufélag Íslands efnir til fræðslufundar á á veitingahúsinu Fimm fiskum, Frúarstíg 1, Stykkishólmi, fimmtudaginn 22. nóvember kl 20:00.
Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélagsins flytur erindi sem hann nefnir „Rót vandans“. Þar mun hann meðal annars fjalla um nokkra helstu lykilþætti í ræktun, svo sem jarðveg og jarðvegsgerð og þær kröfur sem plöntur gera til jarðvegs. Þá verður kennt hvernig á að bera sig að við upptöku trjágróðurs til flutnings, gróðursetningar og áburðargjöf.
Ath.: Kl. 19:30 á undan fræðslufundinum verður haldinn stuttur aðalfundur. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn.
Aðgangseyrir 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ en 1000 kr. fyrir aðra
Allir velkomnir. Nýir félagar velkomnir.
Fyrirlesturinn er fyrir allt áhugafólk um garðyrkju og tekur um tvo tíma.
Boðið verður upp á kaffi í hléi.
|
meira... |
| |
9. mars 2011 |
Fræðslufundur um matjurtaræktun í Stykkishólmi |
 |
| Fátt er meira gefandi en að rækta eigin grænmeti. | Fræðslufundur um ræktun mat- og kryddjurta verður í Vatnasafninu við Bókhlöðustig 17 í Stykkishólmi, laugardaginn 12. mars kl. 13. Jóhanna B. Magnúsdóttir garðyrkjufræðingur mun fjalla um ræktun mat-og kryddjurta í heimilisgarðinum, allt frá sáningu til uppskeru.
|
meira... |
| |
11. maí 2010 |
Garðyrkjufélag Snæfellsness stofnað |
 |
| Frá stofnfundi deilarinnar á Snæfellsnesi. | Sl. miðvikudag var haldinn stofnfundur Garðyrkjufélags Snæfellsness á Ráðhúsloftinu í Stykkishólmi. Formaður var kosinn Anna Melsteð, meðstjórnendur Guðrún Hauksdóttir, Magðalena Hinriksdóttir, Kolbrún Jónsdóttir og Sesselja Pálsdóttir. Vilhjálmur Lúðvíksson formaður Garðyrkjufélags Íslands kynnti félagið og að því loknu kom Jón Guðmundsson garðyrkjumaður og fræddi fundargesti ítarlega um það hvernig koma mætti ávaxtatrjám til að vaxa og bera ávexti utandyra. Að lokum fóru fundarmenn heim með nokkur fræ til að sá í potta. Þeir sem áhuga hafa á félaginu er bent á að ganga í það með því að skrá sig hjá Garðyrkjufélagi Íslands. En þannig verða íbúar á Snæfellsnesi meðlimir í þessu nýstofnaða félagi. Nánari upplýsingar um starfsemi félagsins verður miðlað í gegnum póstlista sem Garðyrkjufélag Íslands heldur utan um. Allar nánari upplýsingar er að fá á www.gardurinn.is
|
meira... |
| |
4. maí 2010 |
Stofn- og fræðslufundur í Stykkishólmi frestað til 5. maí |
 |
| Myndin er tekin í einkagarði félagsmanns í einni af garðagöngum félagsins. | Miðvikudaginn 5. maí n.k. verður haldinn stofnfundur deildar á Snæfellsnesi í Garðyrkjufélagi Íslands á Ráðhúsloftinu í Stykkishómi kl. 20. (ath. breytta dagsetninu).
Deildin verður stofnuð formlega á fundinum og koma hingað gestir frá Garðyrkjufélaginu og segja stuttlega frá því. Strax á eftir verður fræðsluerindi þar sem Jón Guðmundsson garðyrkjumeistari heldur fyrirlestur um ræktun ávaxtatrjáa á Íslandi. Á vefnum www.gardurinn.is segir um Jón „Þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur er garðyrkjumeistarinn Jón Guðmundsson á Akranesi orðinn þjóðsagnapersóna í íslenska garðyrkjuheiminum! Hann er gaurinn sem fær allt til að vaxa og dafna í garði sínum á skjóllitlum fjörukambi við Faxaflóann. Ekkert lætur hann óreynt hvort sem það eru nú salatblöð eða eplatré!"
Allir Snæfellingar og félagar í GÍ eru velkomnir.
|
| |
23. mars 2010 |
Stofnun deildar í Stykkishólmi |
 |
| GÍ félagar í skoða garð í sumarferð félagsins um Suðurland sl. sumar. | Undirbúningur er hafin á stofnun GÍ deildar fyrir Snæfellsnes, sem næði yfir póstnúmerasvæðin 340, 350 og 355. Greinastubbar um málið hafa birst í Stykkishólms-póstinum www.stykkisholmsposturinn.is sjá nánar m.a. á slóðinni: http://www.stykkisholmsposturinn.is/?i=1&o=2417
Hugmyndin er að halda stuttan stofnfund (aðalfund) fljótlega eftir páskana og í framhaldinu yrði spennandi fyrirlestur um ræktun og hugsanlega námskeið fljótlega á eftir. Nánar auglýst hér er nær dregur, en einnig verða fréttir birtar á stykkisholmsposturinn.is, þá verður hengd upp auglýsing í Blóma- og gjafavöruversluninni Ilmi í Stykkishólmi og félagið sendir tölvupóst á þá félaga sem það hefur netfang hjá.
Nýir félagar eru velkomnir í félagið, geta skráð sig í félagið hér á heimasíðunni og verða þeir þá sjálfkrafa félagar í deildinni. Áhugasömum í héraði sem hafa áhuga á að taka þátt í undirbúningi stofnfundar er bent á að hafa samband við Önnu Meldsted á anna.melsted@anok.is eða í síma 861-9621.
|
meira... |
| |