Viltu gerast áskrifandi?

13. febrúar 2012 15:34

Áframhaldandi leiga í Smálöndum

Kæru Smálendingar,

 

Vinsamlegast látið vita sem allra fyrst á gardurinn@gardurinn.is,  hvort þið ætlið að leigja sama eða sömu grenndargarða áfram í sumar eða hvort við megum leigja þá öðrum.  Töluverður biðlisti er nú þegar kominn eftir grenndargarði í Smálöndum. 

meira...
 

 
20. apríl 2011 13:39

Smálöndin öll í útleigu

Allir grenndargarðar í Smálöndum við Stekkjarbakka eru komnir í útleigu.  Félögum er óhætt að hefjast handa um leið og þeir hafa greitt fyrri garðinn.

Gjaldið er kr. 4,000,- fyrir hverja 25fm.  Óskast lagt inn á reikning: 338-26-117, kt. 570169-6539. 

meira...
 

 
26. maí 2010 13:20

Smálönd bókuð

Allir garðar í Smálöndum eru uppbókaðir, en hægt er að fá garð bæði í Kotmýri og Gorvík.  Samningur ásamt reikning verður póstlagður til Smálendinga við fyrsta tækifæri.

 

 

meira...
 

 
3. maí 2010 11:21

Óþarfi að senda inn nýja umsókn

Þeir sem voru með garðland í Smálöndum sumarið 2009 og hafa þegar staðfest að þeir vilji hafa þann garð áfram, þurfa ekki að senda inn nýja umsókn.  Nú þegar hefur verið haft samband við alla þá sem voru með garðlönd þar og lang flestir vilja vera áfram með sama land. 

Eldri umsóknir gilda ekki hjá þeim sem ekki fengu ekki  úthlutað sumarið 2009, þeir þurfa að sækja um að nýju. 

Nú þegar er allt uppbókað í Smálöndum og kominn biðlisti, en hægt er að fá grenndargarð hjá félaginu bæði í Kotmýri og Gorvík.

 

 
29. apríl 2010 11:06

Skýrsla um Smálöndin

Skýrsla GÍ vegna tilraunaverkefnis um Grenndargarða til matjurtaræktunar í samstarfi við Umhverfissvið Reykjavíkurborgar kom út haustið 2009.

Smellið hér til að lesa alla  skýrsluna:  Skýrsla Garðyrkjufélagsins um matjurtagarðana

 
29. apríl 2010 10:51

Smálönd við Stekkjabakka

Smálönd

Reykjavíkurborg afhenti Garðyrkjufélagi Íslands svæði við Vatnsveituveg til útleigu fyrir grenndargarða í þéttbýli. Landið var afhent nýplægt þann 15. maí 2009 og þann 18. maí hafði 50 ræktendum verið úthlutað sextíu og einum 25 fermetra skikum til ræktunar. Sáning og ræktun gekk vel, veðurblíða sumarsins kallaði á mikla viðveru og vökvun en spretta var góð og uppskera sömuleiðis. Almenn ánægja var með fyrirkomulag og uppskeru og hafa 91% óskað eftir að fá aftur skika til ræktunar en þegar hefur verið undirritaður samningur við Reykjavíkurborg um svæðið til 5 ára.

Ath. með því að smella á myndina má skoða hana í stærri ham.