Viltu gerast áskrifandi?

     
3. maí 2013

Ágræðslunámskeið 11. maí.

Ágræðslunámskeið verður haldið 11. maí í sal á Elliðavatnsbænum við Elliðavatn.

Jón Guðmundsson garðyrkjufræðingur verður með verklegt námskeið í ágræðslu ávaxtatrjáa.

 

Verð er áætlað um 3.000-kr. per mann.

Innifalið í verði er lán á hníf ásamt 2-3 grunnstofnum sem menn ágræða á sem þeir taka síðan með sér heim að loknu námskeiði.

Námskeiðið tekur um 2 klukkutíma.

 

Í boði verða mögulega 2-3 námskeið ef ásókn verður mikil,  en 10-15 manns er hámark per námskeið.

 

Vinsamlegast sendið ósk um skráningar á námskeiðið til Carl Jóhann Gränz formanns á carlj@simnet.is

 

 

 

meira...
 

 
1. maí 2013

Fyrirlestur um ræktun og klippingu ávaxtatrjáa

Á undanförnum árum hefur verið vaxandi áhugi á ræktun ávaxtatrjáa hér á landi. Ný yrki skjóta upp kollinum og aukin þekking vex með ári hverju.
Fimmtudagskvöldið  9. maí kl 19:30 verður flutt fræðsluerindi í Glerárkirkju á Akureyri.

Carl J. Gränz formaður ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands og Kristinn H. Þorsteinsson garðyrkjufræðingur og munu fjalla í máli og myndum um ræktun og klippingar á ávaxtatrjám.

Boðið verður upp á kaffiveitingar í hléi.

Aðgangseyrir er 500 kr. fyrir félaga í Garðyrkjufélaginu en 1000 kr. fyrir aðra.

Allir velkomnir.

Fræðslukvöldið er samstarfsverkefni Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélag Íslands, Lystigarðsins á Akureyrar og Garðyrkjufélags Akureyrar 

 

 

meira...
 

 
30. apríl 2013

Aðalfundi ávaxtaklúbbs frestað!

Af ófyrirsjáanlegum ástæðum varð að fresta aðalfundi ávaxtaklúbbsins, sem vera átti í kvöld, þriðjudaginn 30. apríl.  Nánar auglýst síðar. 

meira...
 

 
15. apríl 2013

Aðalfundur Ávaxtaklúbbsins 30. apríl

Aðalfundur Ávaxtaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands verður haldinn í safnaðarheimili Neskirkju þriðjudaginn 30. apríl 2013 kl. 19:30.

Eftir venjuleg aðalfundarstörf verður fyrirlestur

Nánar auglýst er nær dregur.

meira...
 

 
21. ágúst 2012

Fyrirlestur um berjaræktun á netinu

Bækur Leifs hafa notið mikillar hylli og eru fáanlegar á skrifstofu félagsins, sjá nánar undir hnappnum "verslun" hérna vinstra megin á síðunni.
Finnski garðyrkjumeistarinn, plöntuframleiðandinn og rithöfundurinn Leif Blomqvist  var með fyrirlestur á vegum félagsins í janúar sl. um ræktun berjarunna í Finnlandi. Fjallað var um forsendur vaxandi áhuga og þær tegundir og yrki sem farið er að rækta með góðum árangri. Fyrirlesturinn var á ensku. Nú er hægt að skoða klippta útgáfu af fyrirlestrinum á youtube, með því að smella hér.  Fyrirlesturinn er kominn í fjóra ca. 15. mín. hluta.

 

Vonandi hafa allir gagn og gaman af, sérstaklega þeir sem ekki áttu heimangengt á fundinn.

meira...
 

 
24. apríl 2012

Fróðleikur um ávaxtatré

Ólafur sýnir nývöxt á fyrirlestri
Vekjum athygli klúbbfélaga og annarra áhugamanna um ræktun ávaxtatrjáa á fróðleik á heimsíðu Nátthaga www.natthagi.is . Ólafur hefur sett inn fyrirlestur um ávaxtatré sem hann flutti fyrir klúbbinn bæði í Reykjavík og á Akureyri, fyrirlesturinn er  því öllum aðgengilegur núna til lesturs, lærdóms og lífsgleði.  Fróðleg samantekt um  vöxt ávaxtatrjáan,  skaðvalda og blómgunartíma.

 

Ólafur S. Njálsson fær stórt hrós frá Ávaxtaklúbbnum fyrir frábært framtak.

 

 

 

 

 

 

 

 

meira...
 

 
13. apríl 2012

Fréttir af fésbókarsíðu Ávaxtaklúbbsins

Apríkósutré sem er að byrja að blómgast.
Facebook hópurinn okkar fer vel af stað en nú þegar eru komnir 131 meðlimur í hópinn. Ýmislegt hefur verið rætt og látum við fylgja hér helstu punkta úr umræðunni undanfarið.

 

Í hitakastinu sem var nýverið, var tekið eftir því að mikið af trjám halda að vorið sé komið og voru brum farin að þrútna mikið og jafnvel opna sig. Ræddu félagar aðeins um trén sín og kom allavega tvisvar fram að yrkið Tranparente Blanche virðist vera einna fljótast að byrja. Einnig kom spurning sem er með tré sveipuð striga, hvort hún ætti að taka hann af núna eða bíða, var ráðlagt að hinkra aðeins lengur eða fram að laufgun.

Almennt virðist sem tré og runnar séu allt að mánuði fyrr af stað þetta árið.

 

Aron Hinriksson sýndi okkur mynd af apríkósutré sem er að byrja blómgun hjá honum, hann er með það í gróðurhúsi á Selfossi. Gæti verið gaman að prufa meira af slíku en apríkósur eru náskyldar plómunum.

 

Þorsteinn Sigmundsson í Elliðahvammi deildi með okkur myndbandi af innfluttum humlum sem nýttar voru til að frjóvga í köldu gróðurhúsi hjá honum.

 

Sjá myndbandið með því að smella á slóðina: http://www.youtube.com/watch?v=TGEsvnSJCWU&feature=relmfu

 

meira...
 

 
4. apríl 2012

Námskeið í ræktun og umhirðu ávaxtatrjáa

Umsjón: Björgvin Örn Eggertsson 
Staður og stund:   LbhÍ Reykjum, þann 24.4.2012       

Haldið í samstarfi við Garðyrkjufélag Íslands

 
Námskeið ætlað öllum þeim er áhuga hafa á ræktun ávaxtatrjáa og vilja fræðast hjá vönum ræktanda hvernig standa á að ræktuninni. Fyrir þátttakendur í ávaxtaverkefni  LbhÍ og GÍ. ofl. Henrik var með námskeið fyrir fagfólk í garðyrkju hér á landi vorið 2011 við góðan orðstír.  
 
Námskeiðið um ræktun og umhirðu ávaxtatrjáa hefst á stuttri kynningu á líffræði ávaxtaplantna til að auka skilning á ræktunartækni, þeim aðgerðum sem þurfa að eiga sér stað á líftíma plöntunnar til að hún þrífist sem best og skili sem mestri uppskeru.  Fjallað verður um áburðargjöf ávaxtaplantna og kröfur þeirra til næringar.  Farið verður í helstu aðferðir við klippingar á ávaxtaplöntum.  Stutt yfirferð verður yfir plöntuvernd ávaxtaplantna, það er hvernig bregðast á við sjúkdómum og meindýrum í ræktuninni með margvíslegum hætti.  Aðeins verður farið yfir undirbúning plantnanna fyrir veturinn.
Fyrirlestrar á dönsku sem verða gróftúlkaðir.
 
Kennari: Henrik Jensen, Jordbrugstekniker, sérfræðingur í ræktun berja og aldintrjáa í Danmörku.  Guðrún Helga Guðbjörnsdóttir, garðyrkjufræðingur LbhÍ.
 
 
 

meira...
 

 
29. mars 2012 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Ávaxtaklúbburinn á Facebook

20. mars 2012

Fréttir af aðalfundi Ávaxtaklúbbs

7. mars 2012

Aðalfundur ávaxtaklúbbs

23. september 2011

Fyrirlestur um ávaxtarækt

20. september 2011

Pöntunarlisti hefur verið sendur til félaga

5. september 2011

Pöntunarlisti verður sendur til kúbbfélaga fljótlega

8. júní 2011

Ávaxtatrén afhent

21. mars 2011

Ræktun aldintrjáa á Íslandi - gamall draumur.

20. mars 2011 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Grunnatriði í ræktun ávaxtatrjáa - fyrirlestur

11. mars 2011

Fræðsluhlekkur um ávaxtatré

15. febrúar 2011

Ávaxtatrjáaklúbbur stofnaður 14. febrúar 2011