Viltu gerast áskrifandi?

     
1. mars 2013 08:42

Laus garðlönd í grenndargörðum til ræktunar

Enn eru nokkur garðlönd laus á vegum Garðyrkjufélagsins.  Laust er í grenndargörðum í Gorvík við Strandveg í Grafarvogi og í Guðmundarlundi við Vatnsendaveg í Kópavogi.   Öll garðlöndin í Smálöndum við Stekkjarbakka eru í útleigu.  

meira...
 

 
23. janúar 2013 09:59 (1 lesandi hefur sagt álit sitt)

Grenndargarðar – garðlönd sumarið 2013

Grenndargarður sem búið er að sá í.
Fimmta árið í röð mun Garðyrkjufélag Íslands bjóða félögum í GÍ upp á leigu grenndargarða (garðlanda). Félagið er með grenndargarða í Smálöndum, Gorvík og í Guðmundarlundi. Garðar eru 25 m2 og er heimilt að sækja um 2 skika að hámarki. Leiga er kr. 5,000 á garð, fyrir félagsmenn í GÍ, aðrir greiða kr. 7,000.

 

Garðaleigan hækkar nú í fyrsta sinn frá 2009 og verður gjald fyrir félagsmenn kr. 5,000 á garð og kr. 7,000 á garð fyrir þau sem eru utan félags. Tekjur af grenndargörðum eru notaðar til að byggja upp aðstöðuna í grenndargörðunum, girða af svæði og leggja til verkfærageymslur og annað slíkt.

 

Umsækjendum er bent á að öll ræktun í grenndargörðum er háð vinnuframlagi leigjenda við framkvæmdir, bæði á þeirra eigin görðum og sameiginlegum verkefnum. Smellið hér til að sjá saming vegna leigu á garðlandi.

 

Félagar stinga upp sína garða sjálfir, eins og gert er í heimagörðum. Það gefur möguleika á ræktun fjölærra matjurta og að illgresi og grjóti úr illa hirtum görðum sé ekki dreift um svæðið.

Rafrænt umsóknareyðublað um grenndargarða er að finna á hnapp hérna vinstra megin eða með því að smella hér.

 

Allir garðar félagsins voru í útleigu á síðastliðnu sumri.  Þeir félagsmenn og aðrir sem voru með grenndargarð á vegum félagsins síðasta sumar hafa fyrsta forgang með endurúthlutun á sama garði til 1. febrúar.   Greiðsla vegna endur úthlutunar á þessum görðum þarf að berast eigi síðar en 15. febrúar. 

 

Eftir 15. febúar er lausum görðum úthluta til annarra.  Um leið og úthlutun á garði hefur verið staðfest, er sendur út reikningur, sem jafnframt birtist í heimabanka, u.þ.b. 15-20 dögum síðar. Sé reikningur ekki greiddur á eindaga, verður garðurinn leigður öðrum.  Ekki er heimilt að hefjast handa í garðinum fyrr en greiðsla hefur borist. 

 

 

meira...
 

 
10. maí 2012 14:42

Fundur um grenndargarða - á þriðjudagskvöld

Fundur fyrir ræktendur í grenndargörðum Garðyrkjufélagsins,

þriðjudaginn 15. maí, kl. 20 - 22 í Borgartúni 30.


Dagskrá:

  • Lilja Sigrún Jónsdóttir mun fara yfir helstu atriði varðandi samfélag í grenndargörðum, hvers þeir mega vænta af félaginu og þróun grenndargarða á höfuðborgarsvæðinu
  • Rætt verður um framkvæmdir sumarsins á hverjum stað fyrir sig
  • Seinni hluta fundarins verður boðið upp á kaffi og efnt til samráðs reynslubolta og þeirra reynsluminni um hvað er hægt að rækta í 25 fermetrum og getur það orðið mjög gagnlegt.

Það er mikilvægt að við náum að bæta aðbúnað og aðstöðu í öllum grenndargörðunum jafnt og þétt en þar er mikilvægt að ræktendur taki þátt í sameiginlegum verkefnum og á þessum fundi verður kynnt hvernig starfið hefur verið byggt upp.

Við vonumst eftir góðri mætingu,

bestu kveðjur, Lilja Sigrún 

meira...
 

 
16. mars 2012 13:13

Lausir grenndargrðar á vegum félagsins

Hnúðkál.
Eins og tvö undanfarin ár mun Garðyrkjufélag Íslands verða með grenndargarða á sínum snærum fyrir félaga á höfuðborgarsvæðinu.   Grenndargarðarnir sem eru í boði í sumar, eru í Gorvík  í Grafarvogi, í Smálöndum og í Kópavogi.   Hægt er að sækja um grenndargarð undir hnappnum Grenndargarðar hérna vinstra megin á síðunni. Enn eru lausir garðar í Gorvík  í Grafarvogi og örfáir í Guðmundarlundi í Kópavogi.

 

Þeir sem voru með grenndargarð á vegum félagsins sl. sumar, þurfa að staðfesta áframhaldandi leigu sem allra fyrst og eigi síðar en fyrir 1. apríl 2012, 

 

 

meira...
 

 
17. febrúar 2012 12:58

Grenndargarðar sumarið 2012

Mikil búbót felst í að rækta eigið grænmeti.
Fjórða árið í röð mun Garðyrkjufélag Íslands bjóða félögum í GÍ upp á leigu grenndargarða. Félagið er með grenndargarða / matjurtagarða í Smálöndum, Gorvík og í Guðmundarlundi.  Garðar eru 25 m2 og er heimilt að sækja um 2 skika að hámarki. Leiga er kr. 4,000 á garð, fyrir félagsmenn í GÍ, aðrir greiða kr. 5,000.

Umsækjendum er bent á að öll ræktun í grenndargörðum er háð vinnuframlagi leigjenda við framkvæmdir, bæði á þeirra eigin görðum og sameiginlegum verkefnum. 

Félagar stinga upp sína garða sjálfir, eins og gert er í heimagörðum. Það gefur möguleika á ræktun fjölærra matjurta og að illgresi og grjóti úr illa hirtum görðum sé ekki dreift um svæðið.

 

Rafrænt umsóknareyðublað um grenndargarða er að finna á hnapp hérna vinstra megin. Félagsmenn í Garðyrkjufélagi Íslands hafa forgang við úthlutun, og félagsmenn sem áður hafa haft garð hafa forgang með endurúthlutun á sama garði og tilfærslu á milli garða, sé þess óskað.

 

meira...
 

 
16. mars 2011 12:53

Grenndargarðar á vegum félagsins þriðja árið í röð

Þriðja árið í röð mun Garðyrkjufélag Íslands styðja við matjurtaræktun í þéttbýli. Þar er áherslan á að íbúar í þéttbýli geti fengið garðlönd til matjurtaræktunar í nærumhverfi sínu og að afnot af sama skika,  ár eftir ár, sé tryggður. Garðyrkjufélag Íslands hefur einnig bent á þörf fyrir að tryggja ræktunarlandi stað í hverfaskipulagi, ella sé hætt við að ræktun sé vikið í útjaðra byggðar.

 

Garðyrkjufélag Íslands hefur lýst sig reiðubúið til samstarfs við sveitarfélög landsins við framkvæmd og umönnun slíkra grenndargarða, að norrænni fyrirmynd. Fyrsta skrefið í þá átt var þátttaka í tilraunaverkefni um Grenndargarðinn Smálönd með Reykjavíkurborg sumarið 2009 . Tókst það verkefni vel og var vilji til að halda því samstarfi áfram og færa út kvíarnar. Sá þess stað í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi 2010 með áskorun á forsvarsmenn sveitarfélaga landsins að koma til móts við aukinn áhuga íbúa á ræktun eigin matjurta með nægu framboði á góðu ræktunarlandi í nærumhverfi fólks og að ætla því stað í hverfaskipulagi. Úthlutun lands í útjaðri byggðar fellur illa að ræktunarstarfi, kallar á tíð ferðalög og dregur úr fjölskyldusamveru.

 

Ath. Smellið á meira til að sjá alla fréttina. 

 

meira...